18.05.1933
Neðri deild: 77. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2893 í B-deild Alþingistíðinda. (151)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Héðinn Valdimarsson:
Ég vildi utan dagskrár beina fyrirspurn til hæstv. forseta, sem ég óska, að hann felli úrskurð um. — Svo er mál með vexti, að í byrjun apríl fór ég fram á að fá kostnaðinn við ríkislögregluna upplýstan af fjmrh. fyrir marzmánuð, og fékk ég það. En jafnframt bað ég um nánari sundurliðun á þessum kostnaði, hvaða mönnum hefði verið greidd laun og hve mikil og hver annar kostnaður hefði verið. Þessu vísaði fjmrh. til dómsmrh., og þegar ég færði þetta í tal við hann, þá óskaði hann að fá skriflega ósk um þetta. 5. apríl sendi ég dómsmrh. bréf um þetta, og síðan hefi ég ekki fengið svar, þó að ég hafi svo að segja daglega ámálgað þetta við ráðh. Hann hefir ýmist borið því við, að mig varðaði ekkert um þetta eða að það væri svo mikið að gera í stjórnarráðinu. Nú lít ég svo á, að það sé réttur hvers þm. að geta fengið þær upplýsingar viðvíkjandi fjárhag ríkisins, sem yfirleitt er hægt að láta í té. Og þetta eru ekki aðrar upplýsingar en sem sjást á fylgiskjölum landsreikningsins á sínum tíma.
Mér finnst það varhugavert fordæmi, ef ráðh. á að haldast uppi að neita þingmönnum að gefa upplýsingar um mál, sem geta haft mikla þýðingu í sambandi við umr. á þingi.
Ég vil biðja um úrskurð hæstv. forseta, hvort þm. eigi ekki heimtingu á slíkum upplýsingum hjá ráðh.