03.06.1933
Neðri deild: 94. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (1524)

7. mál, gengisviðauka og tekju- og eignarskattsauka

Héðinn Valdimarsson [óyfirl.]:

Það er auðsætt, að fyrirfram er ákveðið samkomulag milli Framsfl. og Sjálfstfl. um afgreiðslu þessa máls, þar sem fyrir liggja prentaðar brtt. nokkrum mínútum eftir að skattafrv. er fellt í Ed. Ég mun ekki ræða þessar brtt., en mun sjálfur flytja skrifl. brtt. um að fella niður hækkun á tolli á kaffi, sykri og kakaó. Slíkur tollur þekkist ekki í siðuðum löndum. Ég myndi leggja til frekari breyt., ef ég héldi, að það hefði nokkra þýðingu, og fara fram á, að tollar á þessum vörutegundum yrðu alveg felldir niður.