03.06.1933
Neðri deild: 94. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)

7. mál, gengisviðauka og tekju- og eignarskattsauka

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Út af ummælum hv. samþm. míns um að það hefði verið samkomulag milli Sjálfstfl. og Framsfl. um afgreiðslu þessa máls, því að hér væri búið að útbýta prentuðu þskj. viðvíkjandi tekjuskattinum, þótt það frv. væri fallið aðeins fyrir fáum mínútum í Ed., þá sé ég ekki, að það út af fyrir sig þurfi að vera nein sönnun. Það þarf ekki að hafa verið annað en að hæstv. ráðh. hafi grunað, að svona myndi fara, en af því er ekki hægt að álykta neitt um samkomulag milli tveggja flokka. Þetta er fullkomin rökvilla, og ég mun ekki greiða atkv. með þeim hluta þessarar till., sem er um viðauka við tekjuskattinn. Ég álít, að það mesta, sem geti komið til greina í því efni, sé, að tekjuskatturinn sé innheimtur með sama viðauka og á seinasta ári, þar sem tekju- og eignarskatturinn þá mynduðu aukaútsvar, sem hefir hækkað svo gífurlega sem raun er á. — Ég mun ekki ræða frekar um málið, en ég mun, svo framarlega sem bornir verða upp einstakir liðir, greiða atkv. á móti þeim liðum, sem fela í sér hækkun á tekju- og eignarskatti.