03.06.1933
Neðri deild: 94. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1290 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

7. mál, gengisviðauka og tekju- og eignarskattsauka

Steingrímur Steinþórsson [óyfirl.]:

Það virðist hafa orðið samkomulag milli Sjálfstfl. og jafnaðarmanna um að fella frv. um viðbótar-tekju- og eignarskatt, sem nú er nýskeð fellt í Ed. við 2. umr. fyrir atbeina þeirra flokka beggja. Það liggur því í hlutarins eðli, að þegar búið er að fella það frv., sem var sanngjarnasta og réttasta leiðin, sem hægt var að fara á krepputímum til að afla nauðsynlegra tekna, þá verður að fara einhverja aðra leið fyrir stj., því að mér skilst, að hún muni ekki geta tekið við fjárl. nema eitthvað verði bætt í skarðið. Ég er ekki ánægður með þær till., sem hér liggja fyrir. Ég get tekið undir það með hv. 2. þm. Reykv., að ég er ekki ánægður með að leggja viðbótartoll á kaffi og sykur, sem eru einmitt brýnustu nauðsynjar fátæka fólksins, og fleira mætti telja. En þrátt fyrir það er síður en svo, að ég ætli að ávíta fjmrh. fyrir að hafa komið fram með þessar till. Ég lít svo á, að þar sem búið er að fella það frv., sem að mínum dómi og okkar framsóknarmanna er hið réttlátasta á þessum tímum, þá verði tæpast komizt inn á skárri leið í þessu máli, þótt auðvitað megi benda á ýms atriði, sem flestir eru mótfallnir. Það er af þessum ástæðum, að ég mun fylgja frv. óbreyttu. En ég vil um leið taka það greinilega fram, að ég er ósamþykkur ýmsu í því. En eins og komið er, og það er einkum fyrir atbeina hinna flokkanna, þá hygg ég þetta einu færu leiðina og sjálfsagt að fara hana nú, því að það er ekki forsvaranlegt að fara svo af þingi, að ekki verði séð fyrir tekjum í stað þeirra, sem áttu að nást með viðbótar-tekju- og eignarskattinum.