04.03.1933
Efri deild: 16. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (1541)

60. mál, rekstrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Á síðasta þingi var ríkisstj. veitt heimild með 1. til þess að ábyrgjast f. h. ríkissjóðs bráðabirgðalán handa Útvegsbankanum, allt að 100 þús. sterlingspund. Heimild þessi var aðeins veitt til eins árs, og var ekki af bankanum notuð nema að nokkru leyti, eða nálægt 60 þús. sterlingspund. Ég hefi leitað upplýsinga um það, hvort lán þetta hefir verið endurgreitt, og er mér tjáð, að það sé nú að mestu greitt, en það, sem enn sé ógreitt, verði greitt einhvern allra næstu daga. Að öðru leyti tel ég rétt að taka það fram, að ég hefi aflað mér kunnugleika um afkomu þessarar stofnunar síðastl. ár, og frá bankaráðinu hefi ég fengið þær upplýsingar, að reksturinn hafi gengið sæmilega síðastl. ár og eftir vonum. Ársreikningar bankans fyrir síðastl. ár kváðu vera um það bil að verða fullgerðir og munu koma fyrir almenningssjónir innan ekki margra daga.

Nú hefir hæstv. fjmrh. farið þess á leit við fjhn., að hún flytti frv. til bráðabirgðalaga um samskonar ábyrgðarheimild handa ríkisstj. handa Útvegsbankanum og á jafnhárri upphæð. Hefir meiri hl. fjhn. orðið við þessari ósk hæstv. ráðh. og flutt frv. eins og það kom frá honum.

Ég skal þó taka það fram, að meiri hl. n. breytti orðalagi á einum stað í grg. frv., þar sem n. vildi ekki gera grg. að öllu leyti að sínum orðum. Í grg. stóð, að hentugra þætti, að lög þessi væru látin gilda um óákveðinn tíma en ekki aðeins til árs í senn. Þessu breytti n. þannig, að bankinn teldi þetta hentugra. Vænti ég, að hvorki hæstv. forsrh. eða bankinn hafi neitt við þessa breyt. að athuga. Hinsvegar er því þannig farið með mitt fylgi við frv., að ég tel vafasamt, að ég hefði getað flutt það annars. Frv. er sem sé að því leyti breytt frá því í fyrra, að nú á það að gilda um óákveðinn tíma, en í fyrra var heimildin aðeins veitt til eins árs. Eins og hv. þm. skilja, er á þessu tvennu sá meginmunur, að með því að veita heimildina til óákveðins tíma afsalar þingið sér rétti til þess að hafa eftirlit með því, hvernig láninu reiðir af. Ég tel, að í sjálfu sér sé réttara, að eftirlitið sé hjá Alþingi. Nú er það ekki svo að skilja, að ég vantreysti þeirri ríkisstj., sem nú situr að völdum, né nokkurri annari stj., er við kynni að taka, heldur er það hitt, að ég tel eðlilegast, að eftirlit þetta sé hjá Alþingi. Ég skal játa, að ég er ekki alveg fullráðinn um það, hvort ég flyt brtt. um þetta atriði frv. eða ekki, en ég vil a. m. k. við þessa umr. slá þennan varnagla með því að taka fram, að þess muni mega vænta, að brtt. um þetta komi fram.

Ég vil strax við þessa umr. taka fram, að þess er vænzt af bæði meiri og minni hl. n., að ríkisstj. sjái um, að það sé öldungis tryggt, að lánið greiðist upp árlega, og það mun mega fullyrða, að vilji þingsins sé sá, að þetta lán verði ekki fast. Hinsvegar tel ég enga þörf að mæla með frv. að öðru leyti. Ég hygg, að hv. þm. muni skilja, að hjá því verður ekki komizt að veita þessa heimild til stuðnings fyrir bankann.

Eftir því sem mér er tjáð, þá veltur á miklu, að þessir möguleikar séu ekki útilokaðir, því að lánskjör þau, sem bankinn hefir notið við þessar lántökur, er mér tjáð, að séu hagstæð og að viðskiptamenn, sem lánið hafa veitt, hafi reynzt hinir liðlegustu og gefið a. m. k. von, ef ekki loforð, um, að viðskiptin haldi áfram, ef því skilyrði verði fullnægt, að ríkissjóður ábyrgist lánið. Ég sé ekki ástæðu frá hendi meiri hl. n. að láta fleiri orð fylgja frv. að sinni. — Ég get eins gert ráð fyrir því, að ég beri fram brtt. við frv. við 2. umr. Mér þykir rétt að skýra frá því, að þess megi vænta, þó að ég sé flm. frv.