18.05.1933
Neðri deild: 77. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2895 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
0155Héðinn Valdimarsson:
Ég vænti, að hv. þm. hafi tekið eftir svari hæstv. ráðh., þar sem hann vill setja skilyrði fyrir því, hvort þingmenn fái upplýsingar eða ekki og yfirlýsingu um það, að ég ofsæki ekki ákveðna menn, sem hafa fengið greiddar fjárhæðir úr ríkissjóði. Þetta lýsir frekar öllu öðru hræðslu hans við að sýna þessa kostnaðarliði. Og það er hin mesta ósvífni að heimta, að þm. gefi honum ákveðnar yfirlýsingar, en fái annars ekki upplýsingar um, hvernig hann verji opinberu fé, og fái að sjá fylgiskjöl með landsreikningnum.
Ég mun gefa deildinni kost á því síðar að gera úrskurð um það, hvort eigi að gera mun á þm., þannig að sumir fái að sjá fylgiskjöl landsreikningsins, en aðrir ekki.
Það getur ekki annað verið, sem varnar hæstv. ráðh. þess, að leyfa þetta, en að eitthvert „svindl“ sé þar á bak við.