14.03.1933
Neðri deild: 22. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1297 í B-deild Alþingistíðinda. (1558)
60. mál, rekstrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f
Atvmrh. (Þorsteinn Briem):
Þetta frv. hefir fengið fljóta og góða afgreiðslu í hv. Ed., en þar var það borið fram af meiri hl. fjhn. fyrir hönd ríkisstj. Þetta frv. er samhlj. því frv., sem í fyrra var borið fram af fjmrh. En Alþ. gerði þá þá breyt. á því, að binda heimildina aðeins við eitt ár. Hér er farið fram á, að heimild verði veitt til þess, að ríkissjóður ábyrgist lán fyrir Útvegsbankann, allt að 100 þús. £ fyrir eitt ár í senn. Þykir þessi breyt. nauðsynleg vegna þess, að oft þarf að gefa Útvegsbankanum fulla vissu um. hvort lán fáist til útgerðar alllöngu áður en þing kemur saman. Virðist nauðsynlegt vegna bankans, að stjórnin hafi þessa heimild fyrirfram, til þess að bankinn geti vitað það í tæka tíð, hvort ábyrgð fæst eða ekki.
Leyfi ég mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.