17.03.1933
Neðri deild: 28. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1297 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)

60. mál, rekstrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Þótt ég hefði kunnað betur við það, að mér hefði verið gert aðvart um það fyrirfram, að málið yrði tekið fyrir, þá hefi ég samt ekki sett mig á móti því, að það yrði gert. Þetta er líka svo einfalt mál og liggur svo kunnuglega fyrir hér í þinginu, að ekki er þörf á mikilli skýringu frá n. hendi, enda er gerð nokkurnveginn full grein fyrir málinu í nál. fjhn. á þskj. 171. Frv. er nú borið fram alveg eins og það kom fram á síðasta þingi. Því var þá dálítið breytt. Breyt. var sú, að í staðinn fyrir að ríkisstj. væri gefin heimild til þess að ábyrgjast slík rekstrarlán fyrir Útvegsbankann í eitt ár í senn, þá skyldi slík heimild vera bundin við samþykki Alþingis.

Nú hefir það sýnt sig og má vera skiljanlegt, að það er nokkrum erfiðleikum bundið að binda svona heimild við samþykki Alþingis, því að svo stendur á, að þörfin fyrir slík rekstrarlán er á fallin áður en Alþingi kemur saman á venjulegum tíma. Af þessum ástæðum er það, að meiri hl. n. hefir getað fallizt á, að ríkisstj. fái heimild til að ábyrgjast rekstrarlán fyrir bankann, með þeim takmörkunum, sem í frv. segir. N. vill þó jafnframt taka það fram, að hún ætlazt til, að ríkisstj. noti því aðeins þessa heimild, án þess að bera það á ný undir samþykki Alþingis, að það sé á sama tíma öruggt, að bankinn greiði að fullu rekstrarlán næstliðins árs.

Ennfremur vil ég bæta því við f. h. meiri hl. n., að n. ætlast til, að stj. veiti alltaf þessa heimild með fullri gætni, og eins að hún veiti ekki heimildina nema brýn þörf sé á.