04.03.1933
Neðri deild: 16. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)
56. mál, mat á heyi
Flm. (Steingrímur Steinþórsson):
Við þm. Skagf. flytjum hér á þskj. 69 frv. til l. um samþykktir um mat á heyi til sölu. Hér er um nýmæli í löggjöfinni að ræða, og skal ég því með örfáum orðum skýra frá, hvað fyrir okkur vakir.
Heyið mun vera sú vara, sem einna misjöfnust er að gæðum af vörutegundum þeim, sem nú ganga hér kaupum og sölum. Fyrst og fremst er hey mjög mismunandi að gæðum frá náttúrunnar hendi. Auk þess er hirðingu heysins þannig varið, að það getur tekið mjög miklum breytingum, og fóðurgildi þess mjög rýrnað frá því það er slegið og þangað til það er orðið þurrt.
Margt fleira kemur til greina, svo sem þroskaskeið jurtanna þegar slegið er, geymsla heysins o. s. frv. Af þessum ástæðum er verðgildi heysins ákaflega mismunandi. Og þegar fram fer sala milli aðila, sem ekki geta náð saman, þannig, að kaupandinn getur ekki séð heyið hjá seljanda, þá getur verið erfitt fyrir kaupanda að fá rétta hugmynd um hverskonar vara það er, sem hann kaupir.
Á síðari árum hefir sala heys farið mjög vaxandi í ýmsum héruðum, jafnframt því sem kauptún og kaupstaðir hafa stækkað og búfé þar fjölgað. Er orðið um allmikla verzlun að ræða á þessu sviði. Nú er það víst, að sumstaðar hefir orðið vart allmikils ágreinings milli kaupanda og seljanda, þannig, að þegar heyið kemur til kaupandans, telur hann ekki hafa verið skýrt rétt frá um gæði þess. Hefir þetta valdið deilum og jafnvel málarekstri, sem er að öllu leyti mjög óheppilegt. Vitanlegt er líka, að til eru óprúttnir seljendur á þessu sviði eins og öðrum, sem telja heyið, sem þeir hafa á boðstólum, betra en það er, og skaða með því ekki einungis sjálfa sig, heldur og alla, sem við heysölu fást í nágrenni við þá. Orkar því ekki tvímælis, að oft getur verið nauðsynlegt, að fram fari einhverskonar opinbert eftirlit eða mat á þessari vöru. Þó leizt okkur flm. frv. ekki ráðlegt að leggja til, að gert væri að skyldu að meta allt hey, sem selt er, hvar sem er á landinu. Teljum við heppilegra að byrja með því að setja heimildarlög um þetta efni, svo hægt sé að ákveða heymat í einstökum sýslum eða hluta af sýslum, þar sem mest þörf þykir á því. Geri ég þó ráð fyrir, að síðar verði tekið fastari tökum á þessu máli og fyrirskipað mat á heyi um allt land.
Frv. þetta flytjum við þm. Skagf. fyrir tilmæli Búnaðarsambands Skagafjarðar. Í Skagafirði er um allmikla heysölu að ræða, einkum til Siglufjarðar. Þar er afstaðan þannig, að erfitt er fyrir kaupendur og seljendur að ná saman, eða fyrir kaupandann að skoða heyið, sem hann ætlar að kaupa. Við lítum svo á, að hér sé um nokkra tryggingarráðstöfun að ræða, þannig, að kaupandinn hafi nokkru meiri vissu fyrir, að heyið sé eins og það er sagt vera, þegar það hefir verið metið af þar til skipuðum manni, heldur en þegar einungis gildir umsögn seljandans sjálfs. Jafnframt á þetta að koma í veg fyrir, að einstakir óprúttnir menn geti spillt fyrir öðrum, sem hey selja.
Ég sé ekki ástæðu til við þessa umr. að fara út í einstakar greinar frv. Það má vel vera, að þörf sé á einhverjum breyt. á því, og vænti ég þess, að n., sem fær málið til meðferðar, athugi það vel, þar sem hér er um nýmæli að ræða. Erum við flm. vitanlega fúsir til samvinnu í því efni.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en vona, að hv. þdm. leyfi frv. að ganga til 2. umr. Legg ég til, að því verði vísað til hv. landbn.