15.03.1933
Efri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1305 í B-deild Alþingistíðinda. (1582)

56. mál, mat á heyi

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Þetta frv. fékk greiða göngu gegnum hv. Nd. Það er flutt af okkur þm. Skagf. eftir beiðni Búnaðarsambands Skagafjarðar. Nú á síðari árum hefir heysala farið vaxandi, svo að það er nú orðið algengt, að betri heyjasveitir selji burt allmikið af heyi sum sumur til annara héraða. Það hefir komið í ljós, að oft hefir orðið hinn mesti ágreiningur milli seljanda og kaupanda um gæði og umbúnað heysins. Seljandi heldur því þá oftast fram, að heyið hafi farið gott og vel um búið, en kaupandi, að það hafi komið vont og laust úr böndum. Nú er það svo, að þetta getur verið áríðandi verzlun og hagkvæm fyrir báða. Þess vegna er nauðsynlegt að fá ákvæði, sem tryggja bæði kaupanda og seljanda rétt úrslit slíkra deilna.

Með frv. þessu er nú ekki lengra gengið en það, að lögfesta heimild fyrir sýslunefndir til þess að setja samþykktir um þetta efni. Er þess þá að vænta, að þær sýslunefndir, sem finna nauðsyn þessa fyrir íbúa síns héraðs, hefjist handa. Það munu vera til þær sýslur á landinu, þar sem þetta skiptir ekki máli, og láta þær þá málið afskiptalaust, en hinar, sem þörf hafa fyrir ákvæði í þessu efni, mega sjálfum sér um kenna, ef íbúar þeirra verða fyrir skaða, ef þær setja ekki þessi ákvæði. Í hv. Nd. var frv. í landbn., og legg ég til, að því verði vísað til sömu n. þessarar hv. d.