29.05.1933
Neðri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2896 í B-deild Alþingistíðinda. (159)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Héðinn Valdimarsson:

Ég vil nota þetta tækifæri til þess að gera fyrirspurn til ríkisstj. út af sögusögnum, sem ganga hér um bæinn um sölu þeirra frímerkja, sem gefin voru út í tilefni af alþingishátíðinni. Það er sagt, að árið 1930 hafi nokkrir menn í Austurríki boðið stj. að prenta fyrir hana frímerki í tilefni af hátíðinni. Það er sagt, að þetta tilboð hafi verið þegið, en hver kjör á að hafa verið samið um, er mér ekki kunnugt, en sagt er í bænum, að kjörin hafi verið þau, að þessir menn hafi fengið hluta af upplagi frímerkjanna fyrir sína fyrirhöfn, en það fylgir með, að frá hálfu stj. hafi lítið eftirlit verið með þessari útgáfu, og nú kvað vera komin fram kæra um það, að við útgáfuna hafi bókstaflega verið beitt svikum, á þann hátt að hafa upplagið miklu stærra en leyfilegt var, og þar af leiðandi reynist þessi frímerki nú verðminni en búizt var við, að þau yrðu. Það fylgir líka sögunni, að frímerkjakaupmaður einn, er keypt hafði allmikið af þessum hátíðarfrímerkjum til þess að græða á þeim, telji sig hafa orðið fyrir miklum halla af þeirri verzlun vegna þessa eftirlitsleysis stj. Telur hann, að frímerki þessi hafi fallið meir á útlendum markaði heldur en búast mátti við, og kennir því um, að framboðið af þeim muni vera meira en eðlilegt er eða átt hefði að vera, miðað við upplag það, sem ákveðið var.

Ennfremur vil ég spyrja að því, hvort það er satt, að stjórnin hafi ekki gengið eftir andvirði þeirra hátíðarfrímerkja, sem seld hafa verið á pósthúsinu hér til einstakra manna, en ekki borguð. Sérstaklega er talað um Gísla nokkurn Sigurbjörnsson, nazistaforsprakka, sem á að hafa fengið lánuð hátíðarfrímerki fyrir 10 þús. kr., sem hann nú neitar að borga vegna eftirlitsleysis stj. með útgáfunni. Mér er ekki kunnugt um, hvað hæft er í þessum sögusögnum, en ég vil nota þetta tækifæri til þess að gefa stj. kost á að bera til baka það, sem rangt kann að vera í þessu máli, en kannast við það, sem rétt er. Ég vil þó geta þess, að mér þykir undarlegt, ef póststjórnin hefir veitt svo langan gjaldfrest sem hér er um að ræða. Ég hafði álitið, að það væri venjulegt, að pósthúsið seldi frímerki gegn staðgreiðslu, og hver, sem vildi, gæti ekki gengið þangað inn og tekið þar svo eða svo há lán í frímerkjum.

Ég hefi sagt forsrh. frá því, að ég mundi gera fyrirspurn til stj. um þetta mál, og geri því ráð fyrir, að ég fái skýr svör frá stj., en það, sem ég spyr um, er þetta: Hvernig var hagað samningum milli ríkisstj. og þeirra manna, sem tóku að sér prentun hátíðarfrímerkjanna?

Hvaða eftirlit var haft með því, að þeim samningum væri fylgt? Hefir komizt upp sviksemi í sambandi við þessa frímerkjaútgáfu, og hverjar ráðstafanir verða gerðar í sambandi við þau svik? Og að lokum, hefir þessum frímerkjakaupmanni, sem ég nefndi, verið gefin eftir skuld hans við póstsjóð fyrir hin lánuðu frímerki, eða er hér um vanrækslu á innheimtu að ræða, og ef svo er, hverjum er þá um að kenna?