27.03.1933
Efri deild: 35. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (1599)
55. mál, lán úr Bjargráðasjóði
Jón Baldvinsson:
Ég sé á þessu frv. og því, sem n. leggur til, að frv. muni verða að 1. Það er búið að ganga gegnum Nd. athugasemdalaust. Ég ætla að minna d. á það, að fyrir nokkrum árum flutti þáv. þm. Ak. frv. í svipuðu skyni og þetta, að tryggja hafnir norður frá, og þá sérstaklega Akureyri, að þær verði ekki matvörulausar, þó ísaár kæmi. Því frv. var nú ekki vel tekið af d. þá. Ég man ekki, hvort það var fellt eða svæft, en það fór svo, að það komst ekki fram. Nú hafa báðir þm. Skagf. borið fram samskonar heimild, sem þeir ætla sér að nota handa Skagfirðingum. Að vísu er þetta almenn heimild, en eftir því, sem þeir segja, er hún flutt eftir beiðni búnaðarsambands Skagfirðinga. Hugsunin með þessu frv. er, segja flm., að nota væntanleg lán til þess að hafa jafnan kornvörubirgðir fyrirliggjandi á þeim tíma árs, sem hafíshættan er. Þetta þýðir, að fé Bjargráðasjóðs og fé sýslnanna verður lagt í dálitla hættu með þessu móti. Ef sýslufélag hefir nú birgt sig upp með miklar vörur, sem þykja hæfilega miklar til þess að tryggt sé, að ekki verði kornvöruskortur, þó samgöngur teppist á sjó, og ef nú ekki kemur ísaár, þá verður að endurnýja þessa matvöru frá ári til árs, því sennilega dettur mönnum ekki í hug að geyma kornvörur árum saman. Það hlýtur því að verða að selja birgðirnar á hverju vori, þegar menn þykjast sjá, að ekki verði hætta af samgönguteppu af völdum hafíss. En þá kemur það til, að á sama tíma eru allar verzlanir og kaupfélög birg með þessar vörur. Þarna kemur fram galli í verzlunarskipulaginu, sem endar með því, að sýslurnar hljóta að tapa á því að selja kornvörur fyrir neðan það verð, sem kaupfélög og kaupmenn bjóða. Þess vegna var sú hugmynd, sem lá til grundvallar fyrir frv. þm. Ak. á sínum tíma, alveg rétt, að taka kornvöruverzlunina í hendur sýslufélaganna. Með því móti geta sýslufélögin haft nægar birgðir og þurfa ekki að vera í hættu um það, að þau brenni inni með þessar birgðir eða að þær skemmist í höndum þeirra eða þau þurfi að selja þær fyrir lægra verð en kaupmenn. Því það kostar nokkuð mikið að geyma miklar birgðir of korni frá haustnóttum og kannske langt fram á næsta sumar á eftir. Þess vegna vil ég beina því til flm., hvort hann vilji ekki athuga þessa hlið málsins, sem mér finnst geta orðið sýslufélögum þungur baggi, og hvort hann vildi ekki taka upp hina leiðina, eða að n. íhugaði, hvort ekki væri rétt að veita sýslufélögum heimild til þess að hafa einkasölu á korni í sínum héruðum. Þá er búið að fyrirbyggja þann galla, sem er á frv. frá mínu sjónarmiði, þann fjárhagslega skaða, sem sýslufélögin geta orðið fyrir af þessu frv. Ég geri ráð fyrir, að á þessum stöðum séu víðast kaupfélög, sem sýslufélögin gætu þá falið þessi einkaréttindi og kaupfélögin síðan tryggt almenningi, að matvörur séu fyrir hendi, þó samgöngur teppist einhvern tíma árs. Að þessu leyti gæti verið vit í að heimila sýslufélögum lán úr Bjargráðasjóði í sambandi við slík matvörukaup, því það getur vel verið, að kaupfélögin geti ekki öll lagt fram svo mikið fé, sem þarf til þess að hafa fyrirliggjandi miklar kornvörubirgðir yfir mjög langan tíma.