20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1322 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)
89. mál, silfurberg
Sveinn Ólafsson:
Örfá orð til svars ræðu hv. frsm. Hann heldur því fram, að ég muni ætla ríkinu að hafa þá menn, sem silfurberg hafa að bjóða, að féþúfu ríkissjóðs. Þetta er engan veginn rétt og alls ekki mín hugmynd. Hitt er augljóst, og hv. þm. veit það vel — jafnskýr maður og hann er — að aðstaða ríkissjóðs til þess að bjóða silfurberg, sem unnið verður úr Helgustaðanámu, versnar að stórum mun, ef framboð koma úr mörgum áttum. Auðvitað dettur mér ekki í hug, að ríkissjóður taki nema örlítinn hundraðshluta fyrir sölu silfurbergsins og útboð á því, ef fyrir aðra er selt, og eðlilega gæti ríkið ekki með þeirri umboðssölu unnið nema lítinn hluta þess fjár, sem lagt hefir verið í námuna. Ég tel sjálfsagt, að 1. standi óhreyfð, til að vernda rétt ríkissjóðs, ef tekinn verður upp aftur rekstur Helgustaðanámu. Hvergi mun vera eins auðvelt að vinna sem þar, einmitt vegna þeirra miklu mannvirkja, sem þegar hafa þar gerð verið.