30.03.1933
Efri deild: 38. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)
89. mál, silfurberg
Frsm. (Jón Þorláksson):
Ástæðan til þess, að silfurbergsnáman hjá Helgustöðum er tæmd, er náttúrlega ekki sú, að það hafi verið einstaklingsrekstur á henni, en ekki ríkisrekstur, heldur blátt áfram, að búið er að taka úr henni allt það silfurberg, sem þar hefir verið finnanlegt. Og það hefir gengið til þurrðar jafnt þegar ríkið hefir verið að verki sem einstaklingar. Þessi náma er því miður þess eðlis, að silfurbergsmyndunin er ákaflega staðbundin, og hún hefir nú ekki reynzt vera víðáttumeiri en þetta, að það er búið að taka allt, sem þar þykir vera finnanlegt af nothæfu silfurbergi.