29.05.1933
Neðri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2901 í B-deild Alþingistíðinda. (165)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Héðinn Valdimarsson:

Eins og málið liggur nú fyrir, þá vildi ég beina þeirri beiðni til dómsmrh., að hann athugaði, ef hann veit það ekki, hvernig háttað er um lán á frímerkjum í pósthúsinu, og eftir hvaða heimild slík lán eru veitt. En til forsrh., sem segir, að málið sé nú í rannsókn og muni skýrast seinna, vil ég beina þeirri fyrirspurn, hvort allt upplagið af frímerkjunum hafi komið hingað til lands, eða hvort einhver hluti þess hafi orðið eftir fyrir útgáfukostnaði, m. ö. o., hvort hér hafi verið um hreina gjöf að ræða frá þessu félagi, eða hvort félagið hefir fengið hluta af útgáfunni. Og ef eitthvað af upplaginu hefir orðið eftir, hvað mikið og hvaða eftirlit var haft með prentun frímerkjanna og hvernig hefir verið fylgzt með þessu máli síðar frá hálfu stj. Það er kunnugt, að meðal frímerkjakaupmanna hefir sá orðrómur gengið í langan tíma, að ólag hafi verið á þessari útgáfu.