28.02.1933
Neðri deild: 12. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1339 í B-deild Alþingistíðinda. (1693)

44. mál, hjúkranarkvennalög

Flm. (Vilmundur Jónsson):

Ég vona, að þetta frv. sæti ekki andmælum, þar sem frv., er veitir ljósmæðrum tilsvarandi og þó víðtækari réttindi, flaug í gegnum deildina fyrir skömmu síðan. Er þó hér um lengra og erfiðara nám að ræða. Frv. á að tryggja rétt þeirra kvenna, sem lærðar eru í hjúkrun, til að heita hjúkrunarkonur og tryggja þeim nokkur önnur réttindi. Í 2. gr. er svo ákveðið, að eigi megi ráða aðrar en fullgildar hjúkrunarkonur samkv. 1. gr. til að starfa við sjúkrahús, sjúkraskýli o. s. frv., en ráðherra jafnframt veitt heimild til að veita undanþágur frá þessum ákvæðum, þegar ástæða þykir til, þar sem augljóst er, að litlum sjúkraskýlum í sveitum er oftast ofvaxið að borga fulllærðum hjúkrunarkonum. Óska ég, að frv. verði, að lokinni umræðu, vísað til 2. umr. og allshn.