15.03.1933
Neðri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)

44. mál, hjúkranarkvennalög

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Út af því, sem hv. frsm. sagði um sveitaskólana, að þeir einir af skólunum yrðu undanþegnir því samkv. þessari breyt. að þurfa að hafa í sinni þjónustu hjúkrunarkonur, sem hefðu tekið próf frá hjúkrunarkvennaskóla Íslands, þá vil ég geta þess, að þetta á líka við kauptúnaskólana. Það eru því eingöngu kaupstaðaskólarnir, sem þessi skylda hvílir á samkv. þessari brtt. minni, og styðst við það, að þeir skólar væru yfirleitt svo stórir, að þeir ættu frekar samstöðu með sjúkrahúsum eða öðrum meiri háttar hjúkrunarstofnunum, sem nú er gert ráð fyrir að leggja þessa skyldu á herðar.

Það felst ekki í þessari brtt., að þessum skólum sé ekki eftir sem áður veitt heimild til að ráða til sín hjúkrunarkonur, sem hafi fullkomna menntun.

Það er óþarft að deila um nafnið á þessum konum, en samkv. þessari brtt. minni öðlast þær ekki rétt til að bera heitið hjúkrunarkonur. Þær geta náttúrlega fengið það samkv. 4. gr. frv. eins og aðrar, en það ákvæði nær eingöngu til þeirra kvenna, sem hafa starfað eða starfa við hjúkrun, þegar lög þessi öðlast gildi. Þær konur, sem byrja á hjúkrunarstörfum eftir þann tíma og ekki hafa tekið próf frá hjúkrunarkvennaskóla Íslands, öðlast vitanlega ekki rétt samkv. þessu til að kalla sig hjúkrunarkonur. Þær verða að kalla sig „hjúkrunarstúlkur“ eða eitthvað því um líkt, til þess að komast framhjá þessu ákvæði l. Ég býst við, að í málvenjunni verði þær kallaðar hjúkrunarkonur, þrátt fyrir ákvæði laganna, þar sem þær vinna að sömu störfum og inna í fjölmörgum tilfellum líkt starf af hendi. Ég get fyrir mitt leyti unnað þeim að hafa áfram hjúkrunarkvennaheitið, en það er ekkert aðalatriði í þessu máli.