30.03.1933
Neðri deild: 40. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1729)
118. mál, einkaleyfi
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Engin andmæli hafa komið fram gegn þessu frv., og verð ég því að álíta, að allur þingheimur telji málið gott og þarflegt. Ég þarf ekki að taka neitt nýtt fram, en vil þó geta þess, að umsækjandi einkaleyfisins hefir þegar gert viðbúnað til þess að hin nýja fiskverkun verði hafin á næstunni. Hann mun byrja verkunina og kenna aðferðir sínar hér í Reykjavík, en fara síðan austur og norður um land, og býst hann við að geta komið upp fjórum eða fleiri verkunarstöðvum á næsta sumri. Gæti því orðið nokkur árangur af starfi hans þegar á þessu ári, ef frv. verður að lögum, eins og ég þykist hafa góðar vonir um, að verði.