10.04.1933
Neðri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2903 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

Sjóslysin 21.febr. og 10.apríl

forseti (JörB):

Sá sorglegi atburður hefir gerzt hér við ströndina í nótt, að togarinn Skúli fógeti hefir farizt og 13 sjómenn látið lífið. Er hér enn á ný höggið stórt skarð í hóp vaskra drengja og mikið afhroð goldið í missi þeirra. Vil ég biðja háttv. þingdeildarmenn að votta minningu þessara manna virðing sína og aðstandendum samúð með því að rísa úr sætum sínum.