24.05.1933
Efri deild: 80. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í D-deild Alþingistíðinda. (1749)
189. mál, brúargerð á Múlakvísl
Frsm. (Einar Árnason):
Með samþ. þessarar till. heimilar Alþ. ríkisstj. að taka allt að 120 þús. kr. lán til brúargerðar á Múlakvísl í Skaftafellssýslu og jafnframt til vegalagningar, sem nauðsynleg telst í sambandi við brúargerðir. Samgöngur við Skaftafellssýslu hafa verið bættar á síðari árum. Múlakvísl er farartálmi, sem nauðsynlegt er að brúa, og verður þá, ef það er gert, fært lengra austur í sýsluna. Þáltill. þessi hefir gengið greiðlega gegnum Nd. Samgmn. hefir athugað hana og leggur til, að hún verði samþ.