22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1478 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Guðbrandur Ísberg:

Sjútvn. hefir nú skilað áliti sínu um norska samninginn og hefir orðið sammála um að leggja til, að hann verði samþ. Má því segja, að ekki horfi byrlega fyrir þessum mönnum, sem þennan samning vilja feigan. Má það þó vera þeim nokkurt gleðiefni, að þeir, sem samþ. ætla samninginn, virðast margir hverjir gera það með blandinni ánægju.

Það er nú búið að ræða efni samningsins allmikið og ætla ég ekki að fara mikið út í það. Vil aðeins benda á nokkur einstök atriði, sem ekki verður of oft á minnzt.

Viðvíkjandi afgreiðslu samningsins er ekki nema um tvennt að velja. Annað er að samþ. hann ekki, og missum við þá vitanlega þann litla saltkjötsmarkað, sem við enn höfum í Noregi. En um leið ættum við að sjálfsögðu að leggja svo háan toll á síld, sem seld er í land af útlendingum til bræðslu eða söltunar, að Norðmenn verði praktískt séð útilokaðir frá að nota þá heimild, sem þeir hafa haft til þess að selja síld í land. Verði hitt aftur á móti ofan á, að samþ. samninginn, er rétt að athuga hvað við vinnum við það. Við vinnum ekkert annað en það, að fá markað fyrir fáeinar tunnur af saltkjöti í Noregi. Í þessu sambandi er rétt að benda á það, að árið 1930 fluttum við til Noregs nálega 18 þús. tunnur af saltkjöti, eftir því sem næst verður komizt eftir hagskýrslum. Árið 1931 voru fluttar þangað um 12 þús. tunnur, sem seldust með mestu harmkvælum, svo við lá, að flytja þyrfti sumt heim aftur. Nú í haust munu hafa verið sendar til Noregs 6—7 þús. tunnur af saltkjöti, sem enn er þó óselt að einhverju leyti. Þessi mikla minnkun á saltkjötssölunni til Noregs er engin tilviljun. Hún er bein afleiðing af því, að Norðmenn hafa á undanförnum árum aukið kjötframleiðslu sína svo gífurlega, að í stað þess að þeir áður þurftu að flytja mikið inn af kjöti, framleiða þeir nú meira af því heldur en þeir þurfa sjálfir að nota. Ég hefi hér nokkrar tölur úr norskum hagskýrslum, sem sýna aukningu kjötframleiðslunnar frá því árið 1923, þegar gamli kjöttollssamningurinn var gerður. Nautgripum hefir á þessu tímabili fjölgað um 264 þús. Gefur sá liður geysilega aukið kjötmagn. Svínum hefir fjölgað um 110 þús., eða sem svarar um 50%. Gefa þau slíka af sér geysilegt kjötmagn. Þá hefir sauðfjárstofninn aukizt um 292 þús. Samsvarar það ca. 40 þús. tunna aukinni framleiðslu af sauðakjöti. En árið 1923 fluttum við aðeins tæpar 20 þús. tunnur af saltkjöti til Noregs. Loks má geta þess, að á þessu tímabili fjölgaði geitfé Norðmanna um 109 þús. Þó það sé að vísu fyrst og fremst alið til mjólkur, er þarna einnig um nokkra aukningu á kjötframleiðslunni að ræða.

Það er þess vegna eins og ég hefi sagt engin tilviljun, hin mikla minnkun á kjötsölu okkar til Norðmanna. Og það eru engar líkur til annars en að sú minnkun haldi áfram, þannig að í stað þess að í fyrra voru fluttar til Noregs 12 þús. tunnur af saltkjöti og á þessu ári 6—7 þús. tunnur, verði á næsta ári ekki fluttar þangað meira en 4 til 5 þús. tunnur eða minna. Þetta er allt og; sumt, sem við vinnum við að samþ. samninginn, að fá möguleika til að selja í Noregi þessar 4 til 5 þús. tunnur af kjöti á næsta ári og svo því minna sem lengra liður. Við höfum enga aðra vöru, sem Norðmenn kaupa af okkur.

En hvað fá svo Norðmenn í staðinn? Fyrst það, að norsku síldarverksmiðjurnar mega starfa hér áfram og kaupa 60% af þeirri bræðslusíld, sem þær þurfa árlega, af erlendum skipum. Í öðru lagi mega Norðmenn selja í land, við skulum segja 150 til 200 þús. tunnur af síld til söltunar; það skiptir ekki miklu máli, hver af þeim tölum reynist réttari. En slíkt söluleyfi er í þessu sambandi það sama eins og ef þeim væri leyft að salta sama síldarmagn í landi. Hér við bætist svo það, hvað geysilega mikilla verzlunarhagsmuna Norðmenn hafa að gæta hér, þar sem þeir selja okkur árlega vörur til eigin nota fyrir 7,7 millj. kr. Þessar norsku vörur gætum við allar útilokað, svo framlega að „beztukjara“ samningunum við Noreg væri ekki lengur til að dreifa, og þeir gætu gengið úr gildi 8. júlí næstk.

Ég leyfi mér að fullyrða, að það sé rothögg á íslenzka síldarútgerð að samþ. norska samninginn. Hvað mikið tjón af því hlýzt er ekki hægt að reikna út fyrirfram, en engum blandast hugur um, að það er geysilega mikið. Þó jafnvel gengið sé út frá því, að sagt verði upp samningnum mjög fljótt, þá er óútreiknanlegt, hvað það gæti samt valdið íslenzka síldarútveginum miklu tjóni að hleypa Norðmönnum hér inn. Þeir hafa enn ekki haft aðstöðu til þess að nota þann markað, sem hér er nú um að ræða, Þýzkalandsmarkaðinn, en það er ekki víst, að þeir sleppi honum svo fúslega aftur, þegar þeir einu sinni eru komnir inn á hann, og er þá líklegt, að þeir mundu ganga hart fram til þess að halda honum.

Þó gengið væri alveg fram hjá þessum miklu hagsmunum síldarútvegsins, þá álít ég, að það sé Íslendingum svo mikil smán að ganga að slíkum ókjörum, sem þeim eru boðin með þessum samningi, að þingið megi þess vegna ekki samþ. hann. Gleggstur vottur um það, þvílík ókjör hér er um að ræða, eru ummæli Norðmanna sjálfra, þar sem þeir eru stöðugt að hamra á því í blöðum sínum, hvað geysilega mikill ávinningur það sé þeim að fá þennan samning. Ég ætla aðeins að koma hér með eina tilvitnun þessu til sönnunar, með leyfi hæstv. forseta. Það er einkaskeyti frá Osló, sem birt er í blaðinu „Politiken“ þann 11. þ. mán. Í íslenzkri þýðingu hljóðar það þannig:

„Eins og kunnugt er hófust síðastl. sumar samningar milli Norðmanna og Íslendinga um nýtt verzlunarsamkomulag. Samningamennirnir urðu á eitt sáttir og samningurinn var samþ. í Stórþinginu á lokuðum fundi fyrir nokkrum dögum. Alþingi Íslendinga fær málið til meðferðar einhvern næstu daga, og er talið alveg víst, að það muni einnig samþ. samning inn. Samningurinn mun stórlega létta undir með fiskiveiðum Norðmanna, m. a. við það, að Íslendingar leyfa norskum fiskiskipum aðgang að mörgum íslenzkum höfnum. Á hinn bóginn verður tollur á íslenzku saltkjöti í Noregi lækkaður úr 30 aur. niður í 10 aur. pr. kíló. Í Noregi er mikil og almenn ánægja yfir samningnum, sem talinn er hafa mjög mikla hagfræðilega þýðingu, og sem álitið er, að einnig muni hafa mikla þýðingu í stjórnmálalegu og menningarlegu tilliti“.

Hér liggur fyrir bein yfirlýsing frá Norðmönnum. Þeir segja með skýrum orðum, að samningurinn muni „stórlega létta undir með fiskveiðum sínum“. Og „í Noregi er mjög mikil og almenn ánægja yfir samningnum“, segir í skeytinu. Ég veit ekki, hvernig væri hægt að kveða fastar að orði um gleði Norðmanna yfir því, hvað vel þeim hefir tekizt að koma ár sinni fyrir borð hér. Væntanlega má skilja þetta svo, að í Noregi séu allir flokkar ánægðir með samninginn. Svo bætir höfundur skeytisins við, að samningurinn sé talinn hafa mjög mikla „hagfræðilega þýðingu“. Það þarf ekki að benda á það, að sú hagfræðilega þýðing horfir að Norðmönnum; þeir hefðu ekki farið að undirstrika það, þó þeim virtist samningurinn hafa hagfræðilega þýðingu fyrir okkur. Loks er einnig álitið, að samningurinn hafi „mikla þýðingu í stjórnmálalegu og menningarlegu tilliti“. Þetta er ekki nákvæm þýðing að vísu, og mér finnst þetta vera mjög lævíslega orðað á frummálinu. Þar segir „og som man og saa mener vil faa gunstige politiske og kulturelle Fölger“. Þarna er áreiðanlega ekki átt við, að samningurinn hafi „gunstige“ afleiðingar fyrir okkur. Það er auðvitað meiningin, að hann muni hafa „gunstige“ afleiðingar fyrir Norðmenn sjálfa, og það í stjórnmálalegu og menningarlegu tilliti. Það er e. t. v. of langt farið, en liggur þó nærri að segja, að Norðmenn í gleði sinni yfir undanlátssemi frænda sinna hér á Íslandi geri sér í hugarlund, að þeir geti nú bráðum farið að ná stjórnarfarslegu tangarhaldi á þessari gömlu nýlendu sinni, og e. t. v., að þeir geti nú fyrir alvöru farið að eigna sér þær bókmenntir, sem þeir stundum hafa verið að reyna að telja norskar. ( Forsrh.: Það er ekkert um Snorra Sturluson í samningnum).

Að lokum vil ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um 17. gr. samningsins. Á hana hefir ekki verið minnzt svo ég muni við umr. um þetta mál. Þar er tekið fram, að samningurinn gangi í gildi, þegar þrenn skilyrði séu fyrir hendi. Hið fyrsta er það, að Stórþingið samþ. samninginn fyrir sitt leyti. Það hefir það þegar gert. Annað er það, að Alþingi samþ. samninginn, sem ógert er ennþá. En svo kemur þriðja skilyrðið, sem ég skal lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Þegar samningum milli landanna hefir verið komið í lag, annaðhvort með afturköllun uppsagnarinnar af Íslands hálfu eða með því að gera nýjan verzlunar- og siglingasamning, er byggi á sömu meginreglum og samningar og yfirlýsingar, sem nú eru í gildi, en hefir verið sagt upp“.

Í vor sem leið var verzlunar- og siglingasamningum við Norðmenn sagt upp, og geta þeir því gengið úr gildi 8. júlí næstk. Nú er það gert að skilyrði fyrir gildistöku samningsins, auk samþykkis þinga beggja þjóðanna, að þessi uppsögn sé afturkölluð eða nýir verzlunar- og siglingasamningar gerðir á sama grundvelli og þeir gömlu. Verði uppsögnin afturkölluð, verður að fresta a. m. k. um tvö ár að gera nýja verzlunar- og siglingasamninga við Norðmenn, því þeim samningum verður ekki sagt upp nema með árs fyrirvara. Ef aftur hin leiðin er tekin og nýir verzlunar- og siglingasamningar gerðir við Norðmenn fyrir 8. júlí, þá megum við á engan hátt hagga við efni gömlu samninganna, ef samningurinn, sem hér liggur fyrir, er samþ. Þetta láta Íslendingar bjóða sér á því herrans ári 1933.