22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1509 í B-deild Alþingistíðinda. (1791)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Guðbrandur Ísberg:
Hv. þm. Mýr. vildi halda því fram, að ég hefði farið hér með rangt mál, er ég sagði, að það kjöt, sem flutt var til Noregs síðastl. haust, mundi enn vera óselt að einhverju leyti. Ég vil nú ekki halda því fram, að hv. þm. fari hér viljandi með rangt mál. En upplýsingar hans koma mér þó einkennilega fyrir. Ég hafði leitað mér upplýsinga um þetta atriði á þeim stað, er ég taldi ábyggilegastan, og fékk það svar, að kjötið væri enn ekki allt selt. En jafnframt var þó gert ráð fyrir því, að það kynni að seljast allt, því sala á því fer fram allt fram í maímánuð. En samkv. þessum heimildum held ég því fram, að rétt hafi verið frá skýrt hjá mér, að nokkuð af kjötinu sé óselt enn. Hér er því um einhvern misskilning að ræða. Dettur mér nú í hug, að hugsanlegt sé, að hann liggi í því, að Íslendingar kunni að hafa lokið sölu á kjötinu í desember, en einhver hluti þess liggi enn óseldur hjá norskum milligöngumönnum. Þetta atriði vildi ég leiðrétta. En fyrst ég stóð upp á annað borð, vil ég stuttlega drepa á nokkur fleiri atriði.
Því hefir oft verið slegið fram í umr. þeim, sem orðið hafa um þetta mál, að það væri einkennilegt, að þeir, sem nú hafa sitthvað við samninginn að athuga, hefðu ekki hreyft sig á síðasta þingi. En þetta er ekkert undarlegt. Málið lá þá á allt annan veg fyrir þm. Þeir gátu á engan hátt þá vitað, hvernig samningar við Norðmenn mundu falla. Og þeir renndu sízt grun í það, að eins miklu þyrfti að fórna af hálfu Íslendinga og raun hefir á orðið. Og í annan stað var þm. það ekki ljóst þá, að Norðmenn mundu takmarka markað hjá sér á ísl. saltkjöti svo mjög, sem raun er á orðin. Í því sambandi vil ég slá því föstu, að fullyrðing hv. þm. Mýr., að hægt hefði verið að selja þriðjungi meira kjöt til Noregs í haust en gert var, er bara ágizkun og hefir sízt við meiri rök að styðjast en það, er ég hélt fram, að ekki hefði verið hægt að selja meira en gert var, svo teljandi væri.
Þá hefir það slíka verið gert að umtalsefni, að ekki hafi verið rétt að ásaka stj. hér fyrir það að ganga að þessum samningi. Ég hefi nú ekki orðið þess var, að neitt sérstaklega hafi verið veitzt að stj. fyrir þetta. Henni var falið að leita samninga, og ég býst við, að hún hafi reynt að komast eins langt og hægt var. En þess ber að gæta, að þótt stj. hafi unnið að samningunum og lagt samþ. sitt á þá, er þó gildistaka þeirra þeim skilyrðum bundin, að þeir verði samþ. af Stórþinginu í Noregi og Alþ. hér. Og þegar á það er litið, þá er einkennilegt það kapp, sem hæstv. stj. leggur í það, að samningarnir séu samþ., þar sem lokaatkv. um það er þó hjá öðrum aðiljum.
Þá hefir það slíka verið tekið fram, að betra sé en ekki að hafa markað í Noregi fyrir það kjötmagn, sem samningurinn tiltekur. Þessu hefir enginn mótmælt. Það getur vitanlega talizt hagur að því að hafa markað þar fyrir eitthvað, þó lítið sé, t. d. ef vel lætur 6—7 þús. tn., eða þó ekki sé nema 4—5 þús. tn. En það má alla hluti of dýru verði kaupa. Og það er sú hlið málsins, sem ég hefi leyft mér að benda á.
Ég vil drepa á tvö atriði úr ræðu hv. þm. G.-K., enda þó þau séu þaulrædd áður. Annað atriðið var það, að hv. þm. hélt því fram, að munur væri á því að selja síld í land og að salta hana. Það er rétt, að samningurinn hefir ekkert ákvæði um það, að Norðmenn megi salta síld í landi. En hv. þm. veit það vel, eins og allir aðrir, og um það er reynslan ólygnust, að það söluleyfi í land, sem Norðmönnum er veitt, er praktiskt séð alveg sama og söltunarleyfi. Þetta er svo þekkt, að um það þarf ekki að fara fleiri orðum.
Þá taldi hv. þm. mig hafa beitt rakafalsi, þar sem ég hefði ekki tekið tillit til þess, að hér væri aðeins um aukna sölumöguleika að ræða frá því, sem var áður. Þetta er rétt. Ég hefi einmitt bent á það, að ef samningurinn verður felldur, þá mundum við loka fyrir síldarsölu útlendinga með verndartollalöggjöf. Eldri venja kemur þá ekki til greina. Þetta hefi ég sagt áður með svo skýrum orðum, að ekki hefði átt að þurfa að taka það fram aftur. Það nálgast rakafölsun hjá hv. þm. sjálfum að segja þetta, eftir að búið er að taka hitt margsinnis fram.
Hæstv. forsrh. þarf ég litlu að svara.
Hann var að venju hógvær. Hann sagði, að þessi samningur væri bæði hér og í Noregi talinn betri en enginn samningur. Það er nú heldur lítið sagt með því. Og það er ekki langur vegur frá því og til þess, að hægt sé að segja, að samningurinn sé verri en enginn samningur.
Hann vildi leggja áherzlu á það, að það væri hugur Norðmanna að eiga eingöngu vinsamleg viðskipti við okkur Íslendinga. En mér skilst nú, að sá vinarhugur sé á þann veg, sem stundum á sér stað milli stórabróður og litlabróður. Stóribróðir vill a. m. k. í þessu tilfelli gjarnan vera vinur litlabróður, ef litli bróðir gerir allt eins og honum slíkar.