22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Jóhann Jósefsson:

Ég vil benda hæstv. dómsmrh. á það, að þær aths., sem ég gerði út af 12. gr., eru engan veginn fram komnar vegna þess, að saklausir menn verði dregnir fyrir dóm vegna ímyndaðra landhelgisbrota. Heldur var ég að benda á það, að hér er vikið inn á aðra braut heldur en ísl. yfirvöld hafa hingað til viljað ganga í þessu efni. L. frá 1926, þar sem heimilað er að lúka svokallaðri hlerasekt með áminningu eða lágri sekt, benda ótvírætt í þá átt, að sú lúkning eigi að gerast fyrir dómara, en ekki úti á hafi. Það er beinlínis komizt svo að orði í l., að málum þessum megi lúka á þann veg. Enda staðhæfi ég, að það hefir ekki verið venja að túlka þessi lög þannig, að þeim yrði lokið annarsstaðar en fyrir dómi. Ég man heldur ekki betur en að það hafi komið fram opinberlega fyrir nokkrum árum, að skrifstofustjóri í dómsmrn. hafi beinlínis látið þess getið í blaðagrein, að gefnu tilefni, að íslenzkir varðskipstjórar hefðu ekki umboð til þess að gefa áminningu og láta skip sleppa með það úti á hafi. Þetta er það, sem ég vil nú við þetta tækifæri sérstaklega benda mönnum á. En það er alls ekki svo, að ég sé að gerast talsmaður þess, að skip séu að nauðsynjalausu tekin til hafnar vegna meintra brota. En ég slæ því föstu, að með þessari 12. gr. er gengið inn á aðra braut en þá, sem yfirvöldin í landinu hafa hingað til farið í þessum efnum. Þetta vildi ég, að yrði tekið til athugunar nú, til þess að það komi ekki á óvart, þótt að þessum spursmálum yrði vikið síðar. Því að þetta er oft ákaflega mikið álitamál, hvernig eigi að lúka svona vafaspursmálum. Ég man ekki eftir því, að hæstiréttur hafi kveðið upp sýknunardóm á áðurnefndum grundvelli í þessu efni, og tel því skýringu 12. gr. samningsins að þessu leyti ranga.