24.03.1933
Neðri deild: 35. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1517 í B-deild Alþingistíðinda. (1800)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Það er eiginlega fyrst nú við þessa 3. umr., sem hægt er að tala almennt um þetta mál, án þess að koma þyrfti til afbrigða frá þingsköpunum. 1. umr. var með nokkrum hömlum vegna útvarpsins, en við 2. umr. er ekki heimilt að ræða nema einstakar gr. frv.
Ég ætla nú ekki að fara nema fáum orðum um þetta mál. Ég sýndi það við 2. umr., að ég greiddi hiklaust atkv. með þessum samningi, og það byggist aðallega á tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi á því, hver nauðsyn hér er fyrir hendi fyrir landbúnaðinn að halda þeim möguleikum fyrir saltkjötsmarkaði, sem enn eru í Noregi. Ég skal ekki bæta miklu við það, sem sagt hefir verið um það atriði, enda hefir það verið mikið rætt. Það er fullkomlega viðurkennt, að saltkjötsmarkaður okkar í Noregi er að dvína, og það eru engar horfur á því, að hægt verði í framtíðinni að byggja landbúnað Íslendinga að nokkru verulegu leyti á slíkum markaði þar í landi. Norðmenn hafa aukið mjög sína kjötframleiðslu upp á síðkastið, og virðast á góðum vegi að verða sjálfum sér nógir í þessu efni. Þetta er vitanlega engin ný vitneskja fyrir ísl. framleiðendur. Þeir hafa séð, að hverju stefnir í þessu efni fyrir nokkru síðan. Og það er ljós vottur þeirrar vitneskju, að kjötverkun hefir á síðari árum breytzt mikið; hefir verið stefnt í það horf að frysta kjötið og beina sölunni í aðrar áttir. Það er sem sé búið að byggja hér í landi um 12 frystihús, sem eingöngu eða nær eingöngu eru ætluð til frystingar á kjöti til útflutnings. Auk þess er í ráði að byggja fleiri slík hús og yfirleitt leggja grundvöll að því að verka þannig kjöt í öllum þeim héruðum, þar sem hafnir eru, svo að hægt sé að koma við útflutningi.
Það sýnir bezt, hvert stefnir í þessu efni, að á síðustu 4 árum hefir frystiútflutningur vaxið úr 690 smál. upp í 1760 smál., en það var hann síðastl. ár. En þó að svona sé ástatt, þá stendur svo sérstaklega á um saltkjötssöluna hjá okkur, að landbúnaðurinn má ekki undir nokkrum kringumstæðum við því, að hætt sé að halda í þá möguleika, sem enn eru til saltkjötssölu í Noregi. Þetta byggist á því, eins og ég tók fram, að það eru ekki fyrir hendi skilyrði til þess að verka allt kjöt, svo að útflutningshæft sé í frosnu ástandi. Ennfremur eru horfurnar allt annað en glæsilegar í Englandi, landinu, sem við höfum byggt vonir okkar á upp á siðkastið. Því að samkv. þeim samningi, sem Englendingar hafa gert við nýlendur sínar um takmörkun á innflutningi kjöts frá þeim löndum, sem standa utan við alríkið brezka, eru þær takmarkanir þannig að því er okkur snertir, að miðað við útflutning okkar síðastl. ár til Englands, sem var 1750 smál., megum við ekki flytja þangað nú nema sem svarar 745 smál. Með þeim takmörkunum á innflutningi kjöts, sem Englendingar bjóða nýlendum sínum upp á, er þannig kjötútflutningur okkar til Englands skorinn niður um meira en helming. Nú standa yfir af okkar hálfu samningar við Englendinga um þetta efni, og þess er vænzt, sem enn er heldur ekki beinlínis ástæða til að örvænta um, að þeir samningar geti leitt til þess, að rýmkað verði allmikið á þessari takmörkun. En meðan allt er í óvissu um þetta efni og auk þess ekki tæki í landinu til þess að frysta allt kjötið, þá er landbúnaðinum það beinlínis alveg ómissandi að halda þeim möguleikum, sem verið hafa á kjötsölu í Noregi.
Eins og öllum er kunnugt stendur landbúnaðurinn nú á einhverjum þeim alvarlegustu tímamótum, sem komið hafa yfir hann á seinni tímum. Útfluttar landbúnaðarafurðir hafa á síðustu þrem árum fallið í verði sem svarar 65%. Verð á kjöti og slátri innanlands hefir á sama tíma fallið í verði um 55%. Slíkt verðfall má hreint og beint nefna verðlagsbyltingu. Og slíkar verðfallsbyltingar hljóta auðvitað að hafa mjög miklar og alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir þær atvinnugreinar, sem fyrir þeim verða. Því harðara kemur þetta niður á landbúnaðinum nú, þar sem mikið fé hefir verið lagt í búnaðarumbætur að undanförnu, sem fyrst voru vonir um að færu að bera verulegan árangur, þegar verðfallið skall svona hastarlega yfir. Af því má nokkuð marka, hversu alvarlegt ástand þetta skapar, ekki einungis fyrir landbúnaðinn, heldur fyrir þjóðina í heild, að nú lifa um 40% af allri þjóðinni af landbúnaði.
Ég get bent á það, að ef lokað væri möguleikunum til kjötsölu í Noregi, án þess hægt væri að verka allt kjötið til útflutnings í aðrar áttir, og því kjötmagni, sem nú er flutt til Noregs, þannig bætt ofan á innanlandsmarkaðinn, þá mundi það leiða af sér nýtt verðfall á kjötinu hér. Hjá því yrði ekki komizt. Ég finn því sérstaka ástæðu til þess að votta hv. þm. Vestm., sem sæti á í þeirri n., sem um þetta mál hefir fjallað, þakklæti fyrir þá víðsýni og þann drengskap gagnvart landbúnaðinum, sem hann hefir sýnt með framkomu sinni í þessu máli. Eins og kunnugt er, lifa kjósendur hans eingöngu af sjávarútvegi, og lokun norska kjötmarkaðarins gat orðið til þess, að þeir fengju fyrir minna verð það kjöt, sem þeir þurfa að kaupa. En hv. þm. hefir reynzt víðsýnni en svo, að hann léti þessa stundarhagsmuni kjósenda sinna ráða gerðum sínum í málinu, og hefir tekið þá afstöðu að líta fremur á nauðsyn þjóðarinnar í heild. (MJJ: Það er vonandi, að við fáum að njóta sömu víðsýni hjá fulltrúum sveitanna þegar á reynir). Ég veit ekki betur en að þeir hafi sýnt fulla víðsýni í málum sjávarútvegsins eða kaupstaðanna.
Viðvíkjandi hinu atriðinu, sem ég byggi á afstöðu mína til samningsins, er það að segja, að ég álít það mjög mikilsvert í þessu máli, og við höfum nú með þessum samningi fengið viðurkenningu fyrir því frá Norðmönnum, að ívilnanir þær, sem þeir hafa notið hér við land við síldveiðar og fiskiveiðar sínar og auknar eru nokkuð með samningnum, eru beinlínis borgun af okkar hendi fyrir þau fríðindi, sem þeir hafa látið okkur í té með því að lækka tollinn á saltkjöti okkar.
Eins og menn muna, var núgildandi fiskveiðalöggjöf okkar sett eða skráð af nýju, árið 1922. Ég vil benda á nokkur ummæli úr ræðu þess ráðh., sem þá lagði málið fyrir Alþingi, en það var þáverandi fjmrh., Magnús Guðmundsson. Hann segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Og frv. þetta gengur út á að tryggja oss þennan rétt fyrir oss sjálfa, að svo miklu leyfi sem alþjóðaréttur heimilar. Tilgangur frv. er að fara svo langt í þessu sem verða má, án þess að eiga á hættu réttmætar umkvartanir annara þjóða.
Frv. er því sniðið eftir lögum þess lands, er svipaðast er voru landi, en það er Noregur. Þetta er og því náttúrlegra, sem vér einmitt þaðan getum búizt við umkvörtunum, ef nær væri gengið en heimilt er að alþjóðarétti, eða ef efi væri á um þetta. Hinsvegar er það auðsætt, að ef við sniðum lög vor um þetta efni eftir lögum Norðmanna, er ekki unnt fyrir þá að kvarta með réttu. Ég álít, að þetta frv. gangi eins langt og heimilt er að alþjóðarétti, og ég vil þegar vara við að gera á því miklar breyt., því málið hefir verið grandgæfilega athugað“.
Þetta frv. gekk fram án þess að nokkrar efnisbreyt. væru á því gerðar. Svo sammála var þingið um málið, að öll meðferð þess tekur ekki yfir nema eina opnu í umræðuparti Alþingistíðindanna.
Það kom fljótt í ljós þegar farið var að framkvæma þessi lög, að Norðmönnum, sem stundað höfðu síldveiðar hér um langt skeið og verið liðið að haga sér við þær svo að segja eins og landsmenn sjálfir, þeim þótti nú allharkalega að sér búið í þessu efni. Og lögreglustjórar úti um land, einkum fyrir norðan, spurðust þá að gefnu tilefni fyrir um það, hvernig bæri að skilja ýms atriði fiskveiðilaganna, sem í framkvæmdinni snerti engar aðrar þjóðir en Norðmenn. Þetta varð til þess, að þáverandi atvmrh., Klemens Jónsson, gaf út nokkrar skýringar á fiskiveiðalöggjöfinni, eða reglur um, hvernig bæri að haga framkvæmd hennar. Í þeim reglum fólst m. a. það, að ekki mundi verða ákært, þó norsk skip legðu hér á land t. d. 500 til 700 tunnur af síld til söltunar, að norsku síldarbræðsluverksmiðjurnar fengju óátalið að starfa hér áfram og að norsk skip mættu selja til þeirra bræðslusíld.
Þegar svo Norðmenn sögðu upp kjöttollssamningnum 1924 og farið var að semja um það mál af nýju, þá fékkst engin viðurkenning frá Norðmanna hálfu fyrir því, að þeir litu á síldveiðaréttindi sín hér sem borgun af okkar hendi fyrir ívilnun á kjöttollinum. Það kom fram í skjölum, en var ekki tekið upp í samninginn sjálfan, að ekki skyldi verða hert að mun framkvæmd fiskiveiðalaganna gagnvart Norðmönnum, frá því, sem verið hafði. Í skjóli þess hafa nú Norðmenn í fullan áratug notið þeirra réttinda hér við land, sem ekki eru dæmi til, að neinar aðrar þjóðir hafi notið.
Þegar nú kjöttollssamningnum var sagt upp á síðastl. vetri, virðist hafa verið litið svo á, að Norðmenn hefðu þessi síldveiðaréttindi hér eftir sem áður, því þau voru ekki af okkar hendi notuð sem ástæða til þess að byggja á kröfu um niðurfærslu á tollinum. Sést það m. a. af því, að bæta þurfti við þessi réttindi til þess að fá þann samning, sem hér liggur nú fyrir.
Ég veit ekki, hvernig það er í viðskiptum þjóða á milli, ef ein þjóð notar sér um lengri tíma mikilsverð réttindi í öðru landi, sem aðrar þjóðir ekki njóta, hvort það getur leitt af sér einhverskonar hefð; hvort ein þjóð getur, með því að nota slík réttindi um svo eða svo langt árabil, skapað sér rétt til þess að njóta þeirra einnig í framtíðinni. Ég veit ekki vel, hvernig reglur gilda um þetta efni. En við sjáum, að þar sem Norðmenn hafa rutt sér braut í heimskautalöndunum, með því að stunda ýmiskonar veiðiskap, telja þeir sig ekki einungis vera búna að skapa sér rétt til þeirra gæða, sem þeim hefir um langan tíma haldizt uppi að færa sér í nyt, heldur einnig rétt til frekari umráða yfir þeim landsvæðum, þar sem þeir hafa rekið atvinnu. Hitt vitum við slíka, að hér á landi eru til lög um hefð, og sennilega eru til hliðstæð lög í öðrum löndum. Þau eru þannig í framkvæmdinni, að ef t. d. bóndi notar vissan hluta af landi annarar jarðar heldur en þeirrar, er hann hefir til ábúðar, að staðaldri í 20 ár, án þess að um sé samið eða fyrir það greitt, þá skapast við það nýr eignarréttur á því landi, þó landamerki hafi áður verið glögg milli jarðanna. Mér virðist því full ástæða til þess fyrir okkur að fara varlega í að láta Norðmenn njóta sérstakra hlunninda hér óátalið, án þess að viðurkenning liggi fyrir um, að það sé borgun fyrir fríðindi, sem við fáum hjá þeim á móti. Ég segi fyrir mitt leyti, að áður en þessi nýi samningur kom til, var kominn nokkur uggur í mig um það, að hér væri stefnt út í nokkuð óvænt efni fyrir okkur. En ég lít svo á, að með þeim samningi, sem hér liggur fyrir, og þegar er búið að staðfesta af Stórþinginu norska, sé mikil breyt. á orðin hvað þetta snertir. Með honum er í burtu kippt þeim ótta, sem ég, og sennilega fleiri, hefi alið í brjósti við það, að láta Norðmenn óátalið njóta hér réttinda fram yfir aðrar þjóðir, án þess að sérstakt endurgjald komi í staðinn. Eins og kunnugt er kemur skýrt fram í samningnum, að hann er byggður á því, að fyrir þau fríðindi, sem þar eru Norðmönnum áskilin, fáum við lækkunina á saltkjötstollinum. Og samningnum er hægt að segja upp með sex mán. fyrirvara. Norðmenn hafa þannig lýst yfir, að meðan þeir fá hjá okkur fiskveiðafríðindin, fáum við kjöttollsívilnun hjá þeim í staðinn. Þegar okkur þykir ekki lengur kjöttollsívilnunin þess virði, að við viljum láta fiskiveiðahlunnindin á móti, þá getum við losnað við hvort tveggja. Þá hafa Norðmenn ekki lengur nein réttindi hér framyfir aðrar þjóðir, sem síldveiði stunda hér við land. Viðurkenning Norðmanna á því, að við höfum í okkar höndum að gera slíka breyt. þegar okkur bíður svo við að horfa, álít ég, að hafi miklu meira að segja fyrir okkur heldur en þær tilslakanir, sem í samningnum felast Norðmönnum í vil, þó ég viðurkenni, að þær muni vera til hins lakara fyrir okkur. Ég hefi því enga tilhneigingu til þess að vera með hnútukast til þeirra manna, sem að samningunum hafa unnið, né hæstv. stj., sem ábyrgð her á þeim a. m. k. þangað til Alþingi hefir samþ. þá. Ég held, að það megi fremur þakka þeim fyrir að hafa komið í veg fyrir það, að Norðmenn geti haldið áfram með þegjandi samþykki okkar að vinna sér e. t. v. svo og svo mikla helgi á þau réttindi, sem þeir hafa notið hér að undanförnu. Og þó Norðmenn þykist nú hafa himin höndum tekið með samningnum, eftir því sem fram kemur í norskum blöðum, þá á ég von á, að af þeim renni bráðlega gleðidvalinn, og að þeir rumskist þá við það, að þeir hafa með samningnum gefið játningu eða viðurkenningu, sem e. t. v. verður þeim ekki þýðingarlaus í framtíðinni.
Ég ætla ekki að fara að deila um það, hvaða munur er á þessum samningi, þegar litið er á framkvæmdahliðina, frá því ástandi, sem Norðmenn höfðu hér við að búa áður. Þeim mönnum, sem þrautkunnugir eru síldarútgerðinni, ber ekkert saman um það efni, svo ekki er að búast við, að þeir menn, sem ekki hafa þekkingu á, hvernig þessi mál ganga fyrir sig, geti dæmt um, hverjir hafa rétt fyrir sér. En mér virðist það leiða af sjálfu sér, að ef reynslan sýnir, að af síldveiðum Norðmanna hér í skjóli þess réttar, sem samningurinn veitir þeim, stafar innlendu síldarútgerðinni veruleg hætta, þá sé sjálfsagt að segja samningnum hiklaust upp. Til þess að taka síldveiðahlunnindin af Norðmönnum, þurfum við ekki einu sinni að breyta okkar löggjöf. Við höfum yfirlýsingu Norðmanna, staðfesta af sjálfu Stórþinginu, um það, að hér er aðeins um samningsatriði að ræða, sem báðir aðilar hafa sama rétt til að segja upp, hvenær sem þeim þóknast.