24.03.1933
Neðri deild: 35. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1524 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Jón Auðunn Jónsson:
Mér þykir hlýða að gera með örfáum orðum grein fyrir því, hvers vegna ég mun greiða atkv. á móti þessum samningi.
Mér finnst ekki vera á bætandi þau áhrif, sem deilurnar um efni þessa samnings geta haft, sérstaklega út á við, og að ekki sé vert að halda mjög á lofti þeim hlunnindum, sem við höfum veitt Norðmönnum hér við land, fram yfir það, sem gert var með samningnum 1924. En ég tel þau hlunnindi, sem þeim eru veitt með 3., 4., 5., 7. og 12. gr. samningsins þess eðlis, að þau geti orðið okkur hættuleg í samningum við aðrar þjóðir um fiskiveiðahagsmuni þeirra við Ísland. Að öðru leyti eru þau hlunnindi, sem okkur eru veitt með lækkuðum tolli á nokkrum hluta af því saltkjöti, er við flytjum til Noregs, fjárhagslega séð svo lítil, að réttara og sjálfsagðara hefði verið fyrir þing og stj. að bæta bændum upp þann mismun á tollinum á annan hátt heldur en þann, að gefa Norðmönnum þær undanþágur frá fiskiveiðalöggjöfinni, sem samningurinn veitir þeim. Hv. þm. Borgf. sagði, að þær undanþágur snertu Norðmenn eina. Það er rétt, þetta er svo enn sem komið er, en það þarf enginn að láta sér detta í hug, að aðrar fiskiveiðaþjóðir, sem hafa hér hagsmuna að gæta, fari ekki fram á að fá samskonar hlunnindi, og fari svo, að við verðum neyddir til þess að veita þau hlunnindi til annara þjóða, þá óttast ég, að slíkt kunni að verða til þess að torvelda svo alla landhelgisgæzlu hér, að stórskemmda sé af því von í fiskveiðum landsmanna. Hinsvegar átti ég enga von þess, að sæmilegir samningar næðust við Norðmenn og tek því ekki undir þær ásakanir, sem samninganefndarmenn hafa orðið fyrir. Við höfum svo lítilla hagsmuna að gæta í viðskiptum við þá, að okkur er engin nauðsyn að semja við þá.
Ég skal játa það, að síldarútvegsmönnum hefir ekki farizt stórmannlega í þessu máli, því þegar þeim var kunnugt efni þessa samnings, hefðu þeir átt að bjóða þær fórnir frá sinni hálfu, sem bætt hefðu bændum upp þá tollívilnun, sem þeir hafa af samningunum, og með því losna við þau óþægindi, sem ég álít, að síldveiðunum geti stafað af þessum samningi. Í stað þessa hafa þeir aðeins mótmælt samningnum. Slíkt tilboð hefði frá hálfu útgerðarmanna styrkt þeirra málstað, sem andstæðir eru samningnum hér á Alþingi. Sú fórn til bænda, sem fyllilega hefði samsvarað því, sem þeir munu vinna með samningunum, tel ég, að orðið hefði síldarútgerðinni margfalt léttbærari heldur en ívilnanir þær, sem Norðmenn fá með samningnum, ef hann verður samþ. og Norðmenn nota sér þá aðstöðu til síldveiða hér við land, sem samningurinn veitir þeim.
Ég ætla mér ekki að fara út í efni samningsins, sem þegar er mikið rætt og að sumu leyti ekki með fullum rökum, eins og oft vill verða í heitum ágreiningsmálum. Ég óttast afleiðingar samningsins fyrir síldarútgerðina og er hræddur um, að hann geti valdið allmiklum skaða, en hér mun reynslan úr skera, þar sem gera má ráð fyrir, að Alþingi samþ. samninginn. Hinsvegar hefði verið nokkrar líkur til, að samningurinn yrði felldur, ef síldarútvegsmenn hefðu frá öndverðu sýnt, að þeir vildu stuðla að því að bæta bændum það tjón, sem þeir hefðu orðið fyrir við fall samningsins.