24.03.1933
Neðri deild: 35. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1525 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Héðinn Valdimarsson:
Áður en þessi samningur fer út úr hv. d., get ég ekki látið vera að tala dálítið nánar um eitt atriði, sem aðeins lauslega hefir verið á minnzt í umr. enn sem komið er, en það er sú aðstaða, sem samningurinn skapar okkur gagnvart öðrum þjóðum en Norðmönnum. Það er auðséð, að hann verkar gagnvart þeim þjóðum, sem hafa beztu kjarasamninga hjá okkur, samninga, sem ekki hefir verið sagt upp og ekki hefir verið talað um að segja upp. Í samningnum er gerður greinarmunur á síldveiðiskipum og fiskiskipum. Er það augsýnilega gert af ásettu ráði af Norðmanna hálfu, til þess að þorskveiðaskip þeirra eða önnur fiskiskip njóti margvíslegra réttinda við þá veiði, m. ö. o., að samningurinn nái ekki einu sinni til síldveiða, heldur allra veiða í hafinu umhverfis Ísland, og að Norðmenn geti notað Ísland fyrir bækistöð sína.
Nú hefir þess að vísu verið getið, að þjóðir, sem hafa beztu kjarasamninga við Ísland, fái af sjálfu sér öll réttindi Norðmanna samkv. þessum samningi, en lítið hefir það verið skýrt, hversu hættulegt þetta geti orðið atvinnu landsmanna og sjálfstæði landsins að öðru leyti en því, er snýr að Norðmönnum. Það eru fleiri þjóðir en Norðmenn, er stunda síld og þorskveiði. Þeir eru jafnvel í síldveiðum ekki nema aðrir í röðinni. Englendingar stunda síldveiði mest allra þjóða í heimi. Þeir flytja árlega út 1½ millj. tunnur af síld, og þeir selja aðallega á þann markað, sem við erum nú að reyna að vinna í Mið-Evrópulöndunum og teljum beztan framtíðarmarkað. Englendingar selja til Þýzkalands eins 600—700 þús. síldartunnum árlega, en innflutningur Þjóðverja af síld er um ein millj. tunnur. Eitt stærsta síldarsölufirmað í heimi er brezka félagið Blumsfield Overseas. Það selur árlega mikinn hluta brezku síldarinnar til Þýzkalands og annara miðríkja. Það hefir útbú í flestum stærri bæjum í Þýzkalandi, svo sem í Berlín, Altona, Hamborg, Stettin, Danzig, Riga, Libau o. fl. bæjum. Það er auðséð, að þetta firma og önnur slík mundu hafa mikla hagsmuni bundna við sölu Íslandssíldar, sem er farin að keppa við skozku síldina á þýzka markaðnum. Enda er það svo, að Blumsfield Overseas höfðu í fyrrasumar á síldveiðitímanum uppi mann hér og höfðu umboðsmann nyrðra. Keyptu þeir alla íslenzku síldina, er flutt var út til Danzig. Með norska samningnum mundu Englendingar fá sömu réttindi hér um síld sem Norðmenn, og er þá ekkert líklegra en að þeir reyndu vegna markaðarins í Miðríkjunum að fá sér leppa hér til síldverkunar, og síðan sjálfir fara að veiða síldina og selja í land í verksmiðjur og til leppanna til verkunar.
Við England er síldveiði stunduð tvö tímabil á hverju ári, hið fyrra frá miðjum júní þangað til í byrjun ágúst, en hið síðara frá því í október og til áramóta. Veiðina stunda reknetaskip af ýmsum stærðum, en aðallega 60—90 tonna. Það er auðséð, að á tímabilinu frá byrjun ágúst þangað til í september gætu þeir látið skip sín stunda síldveiði hér við land. ef þeir teldu sig hafa markað fyrir ísl. síld í Mið-Evrópulöndunum eða gætu með því útilokað veiði og síldarsölu Íslendinga þangað. Því er ekkert líklegra en að Bretar nái sér í sömu aðstöðu og Norðmenn til síldveiða hér við land. Er þá ekkert líklegra en að samkeppni þeirra gæti gersamlega eyðilagt hinn efnilega síldarmarkað okkar í Mið-Evrópulöndunum. Með samningunum er því ekki aðeins opnuð leið fyrir Norðmenn til aukinna síldveiða hér við land, heldur einnig fyrir aðrar þjóðir, sem ekki nota móðurskip, svo sem Englendinga, en á sama hátt mætti taka aðrar þjóðir, er síld veiða eða hennar neyta. En svo eru slíka í mörgum gr. samningsins ákvæði, er veita þorskveiðiskipum almennt bætta aðstöðu hér við land eins og síldveiðiskipum, og það má fyllilega ætla, að Englendingar reyni að fá þessi fiskiveiðahlunnindi samningsins yfirfærð á sinn veiðiflota í enn viðtækara formi, þegar þeir sjá, að gáttin er alveg opin um síldveiðarnar. Það hefir því með samningi þessum verið gengið út á þá braut að opna fyrir öðrum þjóðum fiskimiðin hér við land og hafnir landsins, í stað þess að reyna að tryggja Íslendingum sjálfum betur en hingað til veiði og markað fram yfir aðrar þjóðir.
Ég geri ráð fyrir, að þessar upplýsingar hafi ekki mikil áhrif á atkv. þeirra þm., sem þegar bundu atkv. sín í þessu máli, og það áður en málið kom til umr., eins og var um flesta þm., tilneydda af stj. En þó er þess vert að láta þessar skoðanir koma fram vegna eftirtímans og þeirra, sem kjósa þm. og ráða, hvort þeir verða endurkosnir.
Þá vil ég út af deilu þeirri, er risið hefir um það, hver afstaða Siglfirðinga sé til þessa máls, þar sem þeir forsrh. og þm. G.-K. upplýstu með miklu sigurhrósi hér í d., að þeirra flokksmenn þar hefðu gert fundarsamþykktir meðmæltar samningunum, skýra frá því, að skipstjórafélagið á Siglufirði safnaði þar almennum undirskriftum með og móti málinu meðal kjósenda, þar sem niðurstaðan varð sú, að 20 menn greiddu atkv. með samningunum en 340 á móti. Þá get ég ekki séð, að mikið sé eftir af Framsóknarmönnum og Sjálfstæðismönnum á Siglufirði, ef þeir eru móti samningunum eins og forsrh. og þm. G.-K. sögðu, að væri.