24.03.1933
Neðri deild: 35. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (1812)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Hæstv. forsrh. lýsti því yfir, að ekki bæri að skilja orð hans í fyrri ræðunni þannig, að kaup verkamanna ætti að lækka, og þykir mér það góð yfirlýsing. Hinsvegar kom hann nú með aðra fullyrðingu viðvíkjandi þessu launaspursmáli. Hann sagði nefnilega, að verkamenn hér í Rvík um aldamótin hefðu verið ánægðir með það tímakaup, sem hægt var að kaupa pund af kjöti fyrir. Ég er því ekki vel kunnugur, hvernig hagur reykvískra verkamanna var um aldamótin. En mér er nær að halda, að þeir hafi ekki verið svo harðánægðir með þetta kaup og hæstv. forsrh. vill vera láta, þótt þeir hafi orðið að sætta sig við það.

Hæstv. ráðh. benti réttilega á það, að Alþ. hefir gert talsvert til styrktar síldarútveginum. Því hefi ég aldrei neitað. Það var hans flokkur ásamt Alþýðuflokknum, sem kom á stofn ríkisverksmiðjunni á Siglufirði. En það er algerður misskilningur af hæstv. forsrh., ef hann heldur, að með því hafi hann og flokkur hans keypt sér eilífa syndakvittun, sem hægi frá honum öllum árásum og aðfinnslum.

Þá fullyrðir hæstv. forsrh., að norski samningurinn dragi ekki úr atvinnumöguleikum manna í sumar. Og þó stendur í grg., að verði samningurinn samþ., lokist markaður fyrir svo sem 50—60 þús. kr. virði af bræðslusíld árlega. Þetta segir hæstv. forsrh. sjálfur í grg. Ætlar hann nú að fara að lýsa sig ósannindamann að þessu? Og svo vitnar hann í hv. þm. G.-K. eins og biblíuna máli sínu til stuðnings, og ber hann fyrir því, að samþ. samningsins dragi ekkert úr atvinnumöguleikum fyrir þá sjómenn, sem stundað hafa síldveiði. Ég hélt, að mig og hæstv. ráðh. greindi ekki á um það, að þarna væri um atvinnuspjöll að ræða, heldur hitt, um hve mikil atvinnuspjöll þarna væri að tala. Ég hefi ekki heyrt því haldið fram áður, að hér yrðu engin atvinnuspjöll af ívílnunum þeim, sem Norðmönnum eru veittar í þessum samningi. Hæstv. ráðh. hefir hingað til haldið því fram, að þarna væri um minni atvinnuspjöll að ræða en ég hefi álitið, og um það er ágreiningurinn okkar á milli.

Hæstv. ráðh. brá mér um vanþekkingu og fullyrðingar í sambandi við þetta mál. Slíkt gæti ég auðvitað alveg eins sagt um hann, ef ég vildi nota slík baráttumeðöl.

En ég hefi áður bent á skýr rök fyrir því, að Norðmenn leggi mikið kapp á það að ná samningum við okkur og mundu vafalaust bjóða nýjar samningsumleitanir, ef þessum samningi yrði hafnað. Ég hefi bent á rök í þessu máli, og ef það eru fullyrðingar, þá er það fullyrðing hjá hæstv. forsrh., að þessir samningar feli í sér þau beztu fáanlegu tilboð frá Norðmanna hálfu. Ég held, að ekkert hafi á það reynt. Þó að þetta séu beztu kjör, sem Norðmenn hafa boðið, þá er það engin sönnun fyrir því, að það séu beztu fáanleg kjör. Norðmenn hafa aldrei orðið varir við nokkrar mótráðstafanir frá okkar hálfu. Þeir tryggðu sér fullan rétt hér sumarið 1932, án þess að láta nokkuð á móti. Ef það er einhver, sem fer hér með fullyrðingar, þá er það hæstv. forsrh., en ekki ég.

Hæstv. forsrh. segir það rétt hjá mér, að erfitt sé að semja við erlendar þjóðir. Ég var ekki að tala um samninga almennt, heldur sagði ég, að erfitt mundi að semja við Englendinga, eftir að búið er að samþ. þennan norska samning, og erfiðara en ef þeir norsku hefðu verið ógerðir.

Og hæstv. ráðh. bætti því við, að samningar yrðu örðugastir, þegar eigin landsmenn gerðu allt sem erfiðast fyrir með ofsa og mótþróa. Ég játa það ekki, að ég hafi sýnt nokkurn ofsa í þessu máli, en mér þykja þessi ummæli hæstv. ráðh. allskrítin. Ég geri ráð fyrir því, að ég hafi leyfi til þess að skapa mér mína eigin skoðun í þessu máli sem öðrum, og sé svo með þeim eða móti eftir málavöxtum. Og hæstv. forsrh. getur þó ekki ætlazt til þess, að ég sitji þegjandi, bara til þess að létta honum samninga, sem ég er sannfærður um, að verði þjóð okkar til óheilla. Þegar svo stendur á, álít ég það skyldu mína sem þm. að sporna við framgangi málsins eftir mætti. Hæstv. ráðh. hefir því enga ástæðu til þess að gefa mér ofanígjöf fyrir það, að vera á móti samningnum, en það hefði verið ámælisvert hefði ég verið á móti samningnum og þagað.