24.03.1933
Neðri deild: 35. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1543 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Hv. þm. Seyðf. sagði, að hæstv. forsrh. vitnaði í mig í þessu máli og teldi það óyggjandi. Ég vona, að hæstv. forsrh. sé þetta óhætt og hv. þm. Seyðf. hefði átt að nota sér betur þær upplýsingar, sem ég hefi gefið í þessu máli; hann hefði þá komizt hjá því að gera sig svo beran að vanþekkingu og framhleypni sem nú er orðið. En ég skal samt skýra þetta atriði, sem hæstv. forsrh. minntist á, nokkru nánar.
Með samningnum 1924 öðlaðist Krossanesverksmiðjan rétt til þess að fullnægja allri sinni notaþörf með kaupum af erlendum skipum. En íslenzka stj. hefir gengið á þennan rétt verksmiðjunnar. Og hv. þm. Seyðf. veit það, að strax þegar samningar hófust við Norðmenn nú, þá héldu Norðmenn því fram, að framkoman við Krossanesverksmiðjuna væri samningssvik af Íslendinga hálfu. Þessi skoðun Norðmanna er rétt. Samningurinn 1924 veitti Krossanesverksmiðjunni ótakmarkaða heimild til þess að kaupa af erlendum skipum. Samningurinn segir, að viðvíkjandi þessu eigi sömu ákvæði að gilda framvegis og verið hafi á árunum 1922—1924, en það, sem gilti á þessum árum var, að Krossanesverksmiðjan hafði ótakmarkaða heimild til þess að fullnægja allri sinni notaþörf með kaupum af erlendum skipum. Og þegar sætzt er á 60% í stað 100%, sem hún hafði heimild til, þá er það réttarskerðing. Það er því laukrétt, sem hæstv. forsrh. sagði um þetta efni.