28.03.1933
Efri deild: 36. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Jón Baldvinsson:
Hæstv. forsrh. hefir nú flutt fram varnir fyrir norska samninginn með svipuðum hætti og í Nd. Og þungamiðjan í rökunum er það, að nú sé verið að gera það sama og gert var með samningnum 1924. Hæstv. ráðh. hefur þó jafnan orðið að ganga inn á það, að nokkur aukning sé á fríðindum Norðmönnum til handa, en þó viljað gera sem allra minnst úr þeirri aukningu.
Eitt má athuga í þessu sambandi. Meðan síldareinkasalan starfaði hér í landi, gátu Norðmenn ekki selt síld í land á sama hátt og áður, nema með því móti, að síldin félli innundir það fyrirkomulag, sem lögfest var í landinu um sölu á síld. En í samningi þessum, sem nú liggur fyrir, er útilokað, að hægt sé að koma upp neinu slíku fyrirkomulagi til að tryggja sölu á síld fyrir landsmenn. Því að þótt segja megi, að illa hafi farið fyrir síldareinkasölunni og hún ekki uppfyllt vonir manna að öllu leyti, þá verður áreiðanlega fyrr en varir horfið aftur að einhverju skipulagsráði og reynt að tryggja sölu síldar á eina hönd út úr landinu, — alveg eins og fiskframleiðendur hafa nú gert um sölu fiskjar. En norski samningurinn útilokar, að slíkt fyrirkomulag verði upp tekið af Íslendingum, því að ég man ekki betur en að í ákvæðum frv. sé tekið fram, að verði slíkar ráðstafanir gerðar, þá geti Norðmenn sagt upp samningnum viðvíkjandi kjöttollinum. Við erum þarna bundnir þannig, að við megum ekki skipuleggja sölu afurða okkar á þann hátt, sem við teljum okkur hentugast.
Þessi réttindi voru tekin af Norðmönnum, þrátt fyrir samkomulagið 1924, með síldareinkasölunni. Norðmenn virtust ekki hafa neitt við það að athuga, heldur urðu að hlíta því að salta í móðurskip á hafi úti, sem reyndist þeim svo misjafnlega, að nú leggja þeir mikið kapp á að taka upp þá aðferð, sem þeir höfðu fyrir 1922, að gera út mörg smáskip og leggja nokkurn hluta aflans í land.
Þessi auknu réttindi eru nú nægilega mikil til þess að setja síldveiði Íslendinga í hættu. Þó að það séu ekki mikil fríðindi í augum Norðmanna, þessar 200—500 tunnur, sem skipin mega selja í land, þá getur það orðið nægilega mikið til þess, að Íslendingar geti ekki keppt við Norðmenn um sölu á síld í land.
Það er athugandi mál, að þau skip norsk, er hingað koma, hafa fyrst verið á síldarvertíð í Noregi. Þegar vertíð líkur þar, koma sömu skipshafnirnar með skipin hingað til áframhaldandi veiða. Þetta er þægilegra en hjá okkur, sem breytum til úr þorskveiðum yfir í síldveiðar á sumrin. Það þýðir meiri kostnað vegna tvennskonar veiðarfæra. En Norðmenn stunda síldveiðar mikið til allt árið.
Ég verð að segja, að þótt fríðindi Norðmanna séu ekki mikil í augum hæstv. forsrh., þá líta sjómenn og útgerðarmenn svo á þetta mál, að þau geti verið næg til þess að stöðva mikinn hluta af ísl. síldarútgerð. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvort hann hafi um þessa samninga leitað til útgerðarmanna og sjómanna og spurt þá um álit þeirra. Ég veit að vísu, að annar maðurinn, sem samdi, var útgerðarmaður. En sú grein útgerðar, sem hann rekur sérstaklega, snertir ekki síldarsöltun, sem þessi liður samninganna bitnar mest á. Hann hefir ekki nægilega alhliða þekkingu á síldveiðum, þó að hann reki síldarverksmiðju. Eftir því sem ég þekki til, þá munu útgerðarmenn, sem verka saltsíld, vera undantekningarlítið alveg á móti þessum samningi, þar eð þeir telja hann útiloka þá frá að keppa við Norðmenn, og hefir þetta komið glögglega í ljós í ályktunum á fundum þeirra.
Hæstv. ráðh. byrjaði með því að segja, að verksmiðjurnar hefðu haft alveg ótakmarkað leyfi til að kaupa síld. Það er raunar upplýst í grg. þessa frv. um 1. gr., að Krossanesverksmiðjan hefir starfað óhindrað frá upphafi, en Raufarhafnarverksmiðjan hafi verið reist algerlega án heimildar og aðeins liðið að starfa, en aldrei leyft. Það var að vísu ekki stór ónákvæmni, en ónákvæmni þó, þegar hæstv. ráðh. talaði eins og þessi verksmiðja hefði haft rétt til að kaupa síld af útlendum veiðiskipum.
Verksmiðjan hefir ekki haft ótakmarkað leyfi til kaupa á síld af útlendum skipum, heldur mátti það aðeins vera 40% af síldinni, sem nú er aukið upp í 60%. Og það er það, sem samningurinn er gerður um, en á þann hátt, að ekki verður annað séð, en að það sé vitalaust af verksmiðjunni, þótt hún kaupi alla síld, sem hún þarf, af útlendum skipum. Því að henni er heimilt að gera fyrirfram samning við norsk skip. Og það mundi sennilega verða þannig, að ísl. skip kæmust ekki að; því að allan fyrri part síldveiðatímans mundi vera fullt fyrir af norskum skipum. Ég sé ekki annað en að þessi fríðindi séu svo mikils virði fyrir Norðmenn og svo mikil skerðing fyrir ísl. síldarútvegsmenn, að það hljóti að hafa lamandi áhrif á hugi manna til að gera út á síldveiðar. Enda er sá óhugur í mönnum nú sem stendur, að það fullyrða bæði útgerðarmenn og sjómenn, að héðan af Suður- og Vesturlandi verði ekkert skip gert út til síldveiða.
Það hefir lítt verið vikið að gerðum ríkisstj. í þessu máli. Hæstv. ráðh. gat þess, að þegar á þinginu 1932 hafi verið komin till. um að segja upp norska samningnum, en engar viðvaranir eða fyrirmæli hafi heyrzt, hvorki frá þingflokkum né einstökum þm. um það, hvað gera skyldi. Hann vitnaði m. a. í ummæli eftir mig, þar sem ég hafi átt að kalla það fullstranga aðferð að segja upp verzlunarsamningnum við Noreg. Og ég skal játa, að þegar farið var með brauki og bramli að segja upp verzlunarsamningnum við Noreg, þá þótti mér sannarlega farið hastarlega af stað. En það var eins og hæstv. stj. ætlaði sér vissulega að gera eitthvað mikið í þessu máli, — knýja Norðmenn til að semja við okkur. En hvernig framkvæmir stj. þetta? Jú, hún segir upp verzlunarsamningnum. Það skiptir kannske ekki miklu máli, hvort hún gerði það 8. júní eða skömmu seinna. En hitt skiptir miklu máli, að stj. lagði Norðmönnum í hendur þau fríðindi sumarið 1932, sem þeir höfðu með samningnum frá 1924, velviljaða framkvæmd fiskveiðalaganna, og leyfir þeim að starfa hér meðan við erum að semja við Norðmenn um kjöttollinn, og reyndar meðan Norðmenn neita að semja við okkur um kjöttollinn. Samningarnir fóru slíka eftir þessari byrjun hæstv. stj. Hvers vegna sagði ekki stj.: Við viljum ekki leyfa ykkur að starfa við Ísland sumarið 1932 með velviljaðri framkvæmd fiskveiðalaganna í ykkar garð, nema því aðeins, að ríkisstj. ykkar gefi kost á samningum um saltkjötstollinn. Það var ekki von, að Norðmenn. væru fíknir í að láta einhver fríðindi af hendi, þegar þeir svo auðveldlega gátu fengið þau fyrir sína fiskimenn sumarið 1932 eins og ekkert væri búið að ske áður.
Annað mál var með verzlunarsamningana. Framkvæmd þeirra kom ekki til fyrr en miklu síðar. Þar álít ég, að hæstv. ráðh. hafi farið af stað með fullstórum orðum, enda dignaði hann þegar til Norðmanna kom og veitti þeim sömu réttindi til starfa 1932, eins og ekkert hefði í skorizt, þó að þeir vildu ekki við okkur tala um kjöttollinn.
Norðmenn sendu nú síðan menn til Íslands 1932. En mér er sagt, að þeir hafi ekkert umboð haft til þess að láta nokkurn skapaðan hlut í ljós, hvað þeirra stj. mundi leggja til. Svo þegar samningar eru gerðir í sept., þá er alveg komið að því að flytja út kjötið. Maður skilur þá aðstöðu þess mannsins, sem samdi af hálfu bænda, að hann sé ákaflega fús til samkomulags og vilji mikið til vinna að koma kjötinu á norskan markað, þegar allt var komið í eindaga. Það er eins og ólánið hafi verið yfir þessu frá byrjun, sem gerði það að verkum, að við hlytum að tapa í þessum samningum.
Það hefir ekki verið mikið talað um formshlið þessa samnings. En hún svarar svona h. u. b. til efnisins. Einhverntíma hefðu það nú þótt tíðindi, ef þeir menn, sem fylla sjálfstæðisflokk á Íslandi, hefðu farið að samþ. samning við annað ríki, sem er eins orðaður og þessi samningur. Norðmenn hafa auðsjáanlega lagt kapp á að orða þannig fyrirsögn 1. kafla, að það væri eins og að búa í haginn fyrir síðar meir að geta kallað eftir einhverjum réttindum. Hann hljóðar þannig:
„Fiskveiðahagsmunir Norðmanna“ ... (Forseti: Ég vil benda hv. þm. á, að það er komið nokkuð langt fram yfir ræðutíma hans). Ég skal taka tilmæli forseta til greina, en verð þó að ljúka máli mínu með nokkrum orðum. Samningurinn hefst á þessu: „Fiskveiðahagsmunir Norðmanna á Íslandi“. Mér er sem ég sæi framan í Skúla Thoroddsen eða Bjarna frá Vogi, ef þeim hefði verið boðið upp á að samþ. samning, sem þannig var orðaður. Þeir, og aðrir sjálfstæðismenn, voru það viðkvæmir, þegar uppkastið 1908 var á döfinni. Ef þeim hefði verið boðið upp á slíkt orðalag, þá er ég hræddur um, að hefði sungið í sjálfstæðiskempunum. Það lítur ekki út fyrir, að allir, sem telja sig sjálfstæðismenn nú á dögum, séu eins hörundsárir fyrir sjálfstæðisréttindum okkar. Því að allt efni og orðalag þessa samnings miðar að því að minnka okkur, en auka réttindi Norðmanna. Það er talað um „fiskveiðahagsmuni“ Norðmanna, en það er bara talað um „innflutning“ á söltuðu kindakjöti til Noregs. Á þetta var bent af hv. 3. þm. Reykv., við umr. í Nd. Því að það eru margir menn hér í landi, sem vilja nokkuð úr því gera, hvernig samningar við aðrar þjóðir eru gerðir, að þeir séu ekki brennimerktir með einhverju undirlægjuorðalagi.
Einar Þveræingur vildi ekki leyfa Norðmönnum fang í Grímsey og sagði, að þar mætti fæða her manns, ef engar vistir væru á burtu fluttar, og hefir hann þá vafalaust haft síldveiðina í huga. (Forseti: E. t. v. ætlar hv. þm. að slá sínum tíma saman í eina ræðu. Ég vil benda honum á, að ef hann talar í hálftíma nú í stað 15 mín., þá hefir hann lokið sínum ræðutíma). Ég geri ráð fyrir, að hæstv. forseti gæti að, hvað tímanum líður. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh., og ætla jafnframt að víkja þeirri spurningu til hv. sjálfstæðismanna, hvort ekki sé svipað nú um þennan samning og forðum daga, þegar verið var að seilast eftir Grímsey. Norðmenn taka sérstaklega fram með sigurgleði, að þeir hafi öðlazt höfuðstað Norðurlands sem fríhöfn á Íslandi, auk Siglufjarðar, þar sem þeir geti nú aftur látið framtak sitt njóta sín.