10.04.1933
Efri deild: 47. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Jón Baldvinsson:
Af því að það mál, sem nú liggur fyrir, er mikið hitamál, sem líklegt er að valdi hörðum deilum, en þeir sorglegu atburðir, sem öllum eru kunnir, hafa gerzt í nótt, þá vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort hann sjái sér ekki fært að taka málið út af dagskrá nú og setja það á dagskrá á morgun.