11.04.1933
Efri deild: 48. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1605 í B-deild Alþingistíðinda. (1843)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Bjarni Snæbjörnsson [óyfirl.]:
Ég vildi aðeins gera grein fyrir mínu atkv. þegar við þessa umr. málsins. Það getur náttúrlega verið, að ég verði dálítið langorðari en hv. frsm., því hann hafði ekki nema eitt atriði sér til afsökunar til þess að samþ. þennan samning. En ég verð að líta á samninginn frá fleiri hliðum, og þess vegna verð ég máske ofurlítið langorðari. Þegar maður gerir upp við sig, hvort maður á að greiða atkv. með þessum samningi eða ekki, þá verður maður að gera það eftir sinni sannfæringu um það, hvað maður álítur, að sé bezt fyrir þjóðina í heild. Ég býst við, að allir hér í þessari d. séu sammála um það, að fiskveiðalöggjöfin sé fjöregg þjóðarinnar, og ef hún er skert, þá verði afkomumöguleikar þjóðarinnar verri í framtíðinni. Það er ekki eingöngu, að ríkisbúskapurinn byggist á fiskveiðunum, heldur líka afkoma allra landsmanna. Ef vel árar fyrir ríkissjóði, þá er hægurinn nærri að hjálpa þeim, sem bágast eiga, hvort sem það eru bændur eða aðrir, og það verða bændur að hafa hugfast, þegar talað er um þetta mál. Það er heldur enginn þm., sem heldur því fram í alvöru, að fiskveiðalöggjöfin sé ekki skert með þessum samningi, en það er bara það, sem þeir halda fram, að nú sé ekki lakara komið en 1924. Nú verður maður að gæta að því líka, að afstaða landsmanna yfirleitt er dálítið öðruvísi nú en 1924. Þegar þetta samkomulag var gert við Norðmenn, þá átti undanþágan ekki að vera nema til bráðabirgða, eins og ætlazt er til af flestum þm. nú, og jafnvel að segja samningnum upp þegar á næsta ári. En þegar það ekki var gert, kom bersýnilega í ljós, að þetta samkomulag var alls ekki til frambúðar. Það hefir verið sagt, að ekki hafi komið fram nein óánægja út af því samkomulagi. En eins og okkur öllum er kunnugt, þá var mikil óánægja út af því, og það kom fram frv. á þinginu til þess að fyrirbyggja leppmennskuna. Og ég er alveg sannfærður um það, að síldareinkasalan var beinlínis fóstur af þeirri óánægju, sem þá reis upp. Sama óánægjan er bersýnilega fyrir dyrum nú, ef samningurinn verður samþ. Þar að auki verður maður að gæta þess, að það er meira í húfi núna, ef fiskveiðalöggjöfin er skert heldur en 1924, og er það af því, að þau vandræði, sem nú steðja að útgerðarmönnum um að fá vörur sínar seldar, voru ekki fyrir hendi þá, og þess vegna er þeim ennþá meira kappsmál að hafa allt óskert og þurfa ekki að heyja harðvítuga baráttu við aðrar þjóðir eins og nú mundi eiga sér stað. Það hefir líka verið talað um það, að hún væri einkennileg þessi óánægja, sem nú er risin upp, þar sem við höfum búið við samkomulagið frá 1924. En það hefir líka verið bent á það, og það bið ég hv. þm. að athuga, að einmitt þau lág, sem samþ. voru til þess að fyrirbyggja leppmennskuna, síldareinkasölulögin, gerðu það að verkum, að menn voru blátt áfram búnir að gleyma því, að það var í samkomulaginu, að Norðmenn mættu leggja hér á land þessar 500—700 tunnur. Þegar ég athuga þetta mál frá sjónarmiði Norðmanna, þá skil ég, að þeim er kappsmál að fá þetta í gegn. Það er tvennt, sem gerir það að verkum. Í fyrsta lagi það, að vegna þessarar löggjafar, sem kom fram á þingi, síldareinkasölulöggjafarinnar, þá var þeim fyrirmunað að leggja síldina á land. Þegar svo fer, þá veiða þeir í móðurskipin. Þetta er Norðmönnum yfirleitt þyrnir í augum. Þeir segja eins og rétt er, að þarna sé síldareinkasölulöggjöfin komin inn á stórkapítalismann og þeir verða að forðast hann. Markaður þeirra verður líka þrengri eftir því, sem lengra liður og nýir markaðir skapast hjá okkur og veita Íslendingum betri aðstöðu en Norðmönnum. Þess vegna er það, að þeir kosta kapps um að fá þessu komið í það horf, sem þeir óska, eftir þessum samningi. Ef þessi samningur verður gerður, þá leiðir tvennt af því. Landhelgisgæzlan verður margfalt erfiðari og kostnaðarsamari, svo vafalaust má segja, að það verði talsvert upp í þá fjárfúlgu, sem fer í þennan kjöttoll. Í öðru lagi er það, að leppmennskan þrífst hér á landi alveg jafnt eins og var eftir 1924. Því hefir verið haldið fram, að slíkt væri undir okkur sjálfum komið, en þegar ég geri það upp við mig, hvort Íslendingar muni geta staðizt þá freistingu að fá fé að láni, salt og tunnur og ýmislegt fleira, þegar bankarnir eru búnir að neita um lán, þá get ég ekki ámælt þeim fyrir það, þó þeir féllu fyrir þeirri freistingu. Það er gefinn hlutur, að Norðmenn, sem eru fjárhagslega miklu sterkari en við, hafa nóg ráð til þess að koma því þannig fyrir og þá um leið erum við búnir að missa mikið til þá markaði, sem við erum nú að afla okkur, og þó samningnum verði sagt upp eftir eitt ár, þá getur það haft hinar alvarlegustu afleiðingar.
Þetta er þeir agnúar, sem ég finn á samningnum og gera það að verkum, að ég fyrir mitt leyti get ekki samþ. hann fyrir þeirra hönd, sem ég hefi umboð fyrir og vegna minnar sannfæringar líka.
Þegar maður aðgætir, hvað fæst í aðra hönd, þá er það takmörkuð sala á kjöti með slæmu verði. Og þar sem formælendur frv. hafa hvað eftir annað hamrað á því, að Norðmenn framleiddu það mikið kjöt, að þeir þyrftu ekki á íslenzku kjöti að halda, þá liggur í augum uppi, að kjötverð fer ekki hækkandi á næstu árum.
Það hefir verið sagt, að það eina góða við samninginn væri það, að honum væri hægt að segja upp. En við verðum að gæta að því, að það er hægara að samþ. hann en segja honum upp. Það þarf fleiri atkv. til þess að fella hann úr gildi, þegar hann einu sinni er kominn í gildi, heldur en að samþ. hann ekki. Mér dettur ekki í hug, eins og mér virtist hv. frsm. sjútvn. (IP) gera, að ámæla stj. og þeim, sem gerðu samningana, að þeir hafi gengið slælega að verki og gert eitthvað öðruvísi en búast mátti við frá þeirra hendi, því ég álít, að sú sök, sem veigamest er, hvíli á Alþingi sjálfu, þar sem það veitti þeim svo slælega afstöðu, sem frekast gat verið, til þess að ganga að þessum samningi. Þess vegna álít ég það skyldu Alþingis nú að sjá að sér og bæta það upp, sem það hefir áður brotið, með því að fella samninginn. Ég get ekki séð, að það sé neitt vansæmandi fyrir okkur Íslendinga, þó við ekki samþ. þennan samning, að það sé eins og hæstv. forsrh. sagði, að stj. yrði þá að taka til sinna ráða til þess að bjarga „samningsheiðri“ landsmanna. Ég get ekki séð, að það sé neinn samningaheiður að veði, vegna þess að vitanlegt er, að þessir menn höfðu ekkert umboð til að samþ. þennan samning fyrir hönd þingsins. Ég verð að segja það, að mér finnst ennþá meiri hringlandaháttur að samþ. samninginn nú og segja honum upp næsta ár heldur en að ganga hreint að verki og fella hann nú og búa sendimennina betur út næst með nýrri löggjöf frá þessu þingi.
Af þessum ástæðum get ég alls ekki greitt þessu frv. atkv. mitt, og ég álít, að það sé ekki rétt gagnvart neinum að samþ. samninginn. Ég sé ekki betur en að það sé jafnbölvað fyrir bændastéttina og sjávarútveginn, að samningurinn verði lögfestur.