29.05.1933
Sameinað þing: 7. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (1846)
183. mál, þjóðaratkvæði um aðflutningasbann á áfengum drykkjum
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vildi aðeins benda hv. þm. Borgf. á það, að með samþykkt brtt. hv. þm. Barð. er þeim tilgangi náð, sem hann sagðist hafa með sinni brtt., sem sé, að þeir kjósendur, sem atkvæðisrétt hafa, ef stjskr. verður endanlega samþ. — þeir, sem eru 21 árs eða eldri — geta þá greitt atkv. um þetta mál.
Hinsvegar vil ég eindregið óska þess, að atkvgr. verði fremur hraðað, af þeirri ástæðu sérstaklega, að ef atkvgr. gengur á móti bannlögunum, sem ég hygg og vænti, að muni verða, þá er ekki gerandi leikur að því að hafa af ríkissjóði þær miklu tekjur, sem hann vissulega gæti haft af einkasölu á víni fram yfir það, sem nú er.
Ef breyt. á stjskr. verður samþ., sem væntanlega verður, þá verða að sjálfsögðu kosningar í sumar. Og til athugunar vil ég benda hv. þm. Borgf. á það, að alls ekki er það útilokað, að aukaþing verði háð seinni part þessa sumars, og nýjar kosningar fari svo fram í haust. Þannig getur það komið til, að þeir kjósendur kjósi á þessu ári, sem fá kosningarétt þegar stjskrbreyt. væntanlega verður samþ. En til þessara tveggja þingkosninga þarf ekki að koma til þess að kosningarétturinn miðist við 21 árs aldur, ef till. þeirra hv. þm. Barð og hv. 2. þm. Skagf. verður samþ.