11.04.1933
Efri deild: 48. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1609 í B-deild Alþingistíðinda. (1851)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Jakob Möller [óyfirl.]:

Út af því, sem hv. 2. landsk. beindi til sjútvn. í sambandi við nál. um þetta frv., vil ég aðeins vekja athygli hans á því, að hlutverk n., þegar henni er fengið mál til meðferðar, er fyrst og fremst að athuga, hvort málið sé þannig lagað, að á því þurfi ekki að gera einhverjar breyt. Hitt er aukaatriði, hvaða augum einstakir nm. líta á málið. Aðalatriðið er að grandskoða málið og vekja athygli þingsins á þeim breyt., sem óhjákvæmilegt er að gera, ef málið á að ganga fram.

Ég veit ekki betur en að það hafi komið til mála í Nd., að þetta mál mætti ganga þar fram nefndarlaust. Ef þetta er rétt, þá er það af þeirri eðlilegu ástæðu, að málið þyrfti ekki þessarar athugunar í n. Það var þannig útbúið, að á því urðu engar breyt. gerðar. Þetta er samningsuppkast, sem samþ. hafði verið af báðum samningsaðiljum og stendur ekki til að breyta. Þessi ummæli sjútvn. þessarar deildar eru því fullkomlega á rökum byggð.

Einstakir nm. hafa ekki látið í ljós álit sitt í nál., og er það fullkomlega eðlilegt, því að eins og áður hefir verið tekið fram, þá hefir svo mikið verið rætt og ritað um þetta mál bæði með og móti, að þeir höfðu litlu þar við að bæta. Þetta sannaði hv. þm. sjálfur með ræðu sinni hér, því að hún var ekkert annað en upplestur gamalla blaðagreina og svo vefenging á þýðingu texta samningsins, vefenging, sem alls ekki stóðst og var algerlega byggð á misskilningi, ekki misskilningi hv. þm., heldur þess ágæta íslenzkumanns, sem hann þó ekki nafngreindi. Það var alveg furðulegt, hvað hv. þm. bar fram í þessu sambandi. Sem dæmi vil ég benda á það sem hann fann að þýðingu 16. gr., sem hann sagði, að væri ekki rétt þýdd. En hann aðgætti ekki, að í upphafi ísl. textans er það tekið fram, sem er í niðurlagi norska textans. Þar stendur orðið „fortolling“, sem er þýtt með „aðaltollur“ í upphafi íslenzka textans. Orðalagið er því annað, en merkingin nákvæmlega sú sama.

Það er í raun og veru illa farið, að þetta mál hefir orðið annað eins æsingamál og orðið hefir, og er það sérstaklega fyrir tilverknað eins manns, sem allt frá upphafi samninganna hafði aðstöðu til að fylgjast með þeim og „kritisera“ þá og gera aðvart, ef þurft hefði með. Þessi maður var í utanríkismálan. og virtist lengst af, að hann vildi fallast á samninginn, eða virtist a. m. k. láta í ljós, að hann væri honum ekki það mótfallinn, að ekki mætti samþ. hann, en svo á síðustu stundu bregzt hann þannig við, að fyrir hans atbeina varð málið að því æsingamáli, sem það hefir orðið. Þetta er illa farið og hefir fyrst og fremst óheppileg áhrif á lausn þessa máls. Það hefir orðið til þess, að fylgismenn málsins, og þá fyrst og fremst stj., hafa sótt mál sitt af meiri krafti og einbeitni en orðið hefði, ef þessi styrr hefði ekki staðið um málið.

Ég get alls ekki fallizt á, að þingið sé að sjálfsögðu bundið við að samþ. þetta mál fyrir það eitt, að samningurinn hafi verið gerður með vilja stj. og um samninginn hafi fjallað menn, sem stj. hafi valið til þess að fara með þetta mál. Ég efast ekki um, að ef þessar uppástungur, sem nú koma fram í samningnum, hefðu verið lagðar fyrir þingið í fyrra, um leið og uppsögn Norðmanna var tilkynnt, þá hefði þeim verið vel tekið, vegna þess að þær eru ekkert annað en endurtekning á þeim samningi, sem áður hefir gilt; munurinn er aðeins mjög lítill, og nenni ég ekki að fara nánar út í það, það hefir verið svo rækilega sýnt fram á, að munurinn er sáralítill. En menn verða að viðurkenna það, að kringumstæðurnar hafa breytzt verulega frá því í þinglok í fyrra. Afstaðan hefir breytzt þannig, að á undanförnum árum leit fyllilega út fyrir, að síldareinkasalan mundi algerlega leggja í rústir alla síldarútgerð og síldarsölu. Nú um hríð hafa menn aftur á móti fengið af nýju að reyna þennan atvinnuveg undir frjálsu fyrirkomulagi. Og síðan þetta frjálsa fyrirkomulag komst á, hafa fundizt nýir markaðir fyrir ísl. síld, markaðir, sem áður þekktust ekki eða þá fengu ekki að njóta sín. Þessir nýju markaðir eru í Póllandi og Þýzkalandi.

Þetta hefir haft þær afleiðingar, að síldarútgerðarmenn og sjómenn líta nú bjartari augum á þennan atvinnurekstur heldur en þeir gerðu áður. Þeir hafa byggt miklar vonir á þessum atvinnurekstri og hafa litið á hann sem lyftistöng fyrir efnalega afkomu þjóðarinnar. Það er því von, að þeim hnykki við, þegar nú á að veita Norðmönnum, sem á undanförnum árum hafa ekki haft aðstöðu til að verka síld hér á landi, tækifæri til ekki aðeins að auka útflutning á saltsíld, heldur líka að keppa við Íslendinga á þessum nýja markaði. Þessi aðstöðubreyt., sem orðið hefir á þessu sviði frá því í fyrra, er að mínu áliti svo mikilvæg, að hún ein gæti fullkomlega réttlætt, að þingið, sem ég játa, að í fyrra hefði sennilega samþ. þessa uppástungu ágreiningslítið, setti sig nú á móti þessum samningi og segði sem svo: „Eftir því, sem nú horfir við, virðist affarasælla fyrir þjóðarheildina að hafna þessum samningum og reyna nú að komast að betri kjörum“.

Eins og oft hefir verið tekið fram áður, þá vantar mikið til, að þær ívilnanir, sem Norðmenn veita um sölu á ísl. saltkjöti, vegi upp á móti þeim hnekki, sem Íslendingar bíða, ef Norðmönnum verða veitt þau fríðindi, sem þeir eiga að fá samkv. þessum samningi. Það saltkjöt, sem tollurinn fæst lækkaður á, er í mesta lagi ½ millj. kr. virði. En síldarframleiðslan, sem á að hnekkja svo mjög með þessum samningi, getur komið til með að skipta mörgum millj. kr., svo að ef um það er að velja, að eyðileggja þessa möguleika ísl. þjóðarinnar til áframhaldandi síldarútgerðar, eða að stöðva sölu á þessum kjöttunnum til Noregs, þá er ekki áhorfsmál, hvort á að velja.

Viðvíkjandi samningaheiðrinum vil ég taka það fram, að ég sé ekki, að Íslendingar verði taldir neitt minni menn, þó að þeir sjái sig um hönd og samþ. ekki það, sem hlýtur að vera þeim til skaða, og það er ekki hægt að segja, að Norðmenn séu beittir neinum óheiðarlegum brögðum, þó að þessir samningar verði ekki samþ. nú. Eins og kunnugt er, þá voru það Norðmenn, sem sögðu upp samningnum frá 1924, en fljótlega samdist svo um, að reyna skyldi að semja af nýju og jafnframt skyldu á meðan gilda þessi ákvæði, sem gilt hafa að undanförnu. Norðmenn höfðu því á sumrinu 1932 öll sömu réttindi til þessa atvinnurekstrar hér við land eins og þeir höfðu samkv. samningnum frá 1924. Það kemur ekki málinu við, þó að þeir notuðu þau ekki, þeir höfðu fullan rétt til að nota þau, ef þeim hefði þóknazt. Jafnframt þessu var af Norðmanna hálfu gengið inn á það, að sama skyldi gilda um sölu á ísl. kjöti til Noregs og gilti eftir samningunum frá 1924. Samningurinn var þannig framlengdur um 2 vertíðir, ef svo mætti að orði kveða.

Þó að ekki verði af framhaldandi samningum, þá má gera ráð fyrir, að hvorugur geti kvartað, því að Norðmenn hafa sín hlunnindi næsta síldveiðatímabil og Íslendingar ívilnanir á kjöttollinum næsta sölutímabil. Hinsvegar má gera ráð fyrir því, að þótt samningarnir verði ekki samþ. á þessu þingi, þá verði fitjað upp á samningum á ný, og þá yrðu aftur framlengd þessi gömlu samningsákvæði frá 1924, svo að undir þeim kringumstæðum hefðu Norðmenn ekki yfir neinu að kvarta, og ég hygg, að ísl. útgerðarmönnum og sjómönnum þætti það einnig miklu betra heldur en að þessi samningur væri nú samþ. Ég held, að ástandið yrði þá mjög svipað því, sem yrði, ef samningurinn yrði samþ., og ef svo færi, að samningar yrðu teknir upp á ný, þá mætti einu gilda, hvor aðferðin yrði höfð, því að vitanlega eru möguleikar til að taka upp samningana aftur á ný.

Ef það er satt, sem fullyrt er, en ég hefi þó ekki heyrt sjálfur, að stj. geri þetta mál að fráfararatriði, þá verð ég að segja, að mér þykir það illa farið. En jafnvel þó að svo sé, að stj. leggi niður völd, ef frv. verður fellt, þá getur það út af fyrir sig ekki fengið mig til að greiða atkv. á móti þeirri sannfæringu minni, að samningarnir séu Íslendingum til hnekkis. Og jafnvel þótt stj. teldi sig skylda til þess formsins vegna að leggja svo mikla áherzlu á framgang þessa máls, að hún verði að segja af sér, ef Alþingi vill ekki samþ. það, þá liggur það í hlutarins eðli, að ekkert er því til fyrirstöðu, að sömu menn skipi þá nýju stj.

Ég sé ekki ástæðu til að segja fleira að sinni. Ég mun greiða atkv. með málinu til 3. umr., en tæpast lengra.