11.04.1933
Efri deild: 48. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1613 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Magnús Torfason:

Eins og drepið hefir verið á, þá er nál. ekki fjölskrúðugt um afstöðu n. til þessa máls. Er mér því skylt að gera grein fyrir mínu atkv., og þá ekki síður fyrir það, að það á að heita svo sem ég sé í utanríkismálan., en henni hefir verið dreift við málið. Að því er það snertir, þykist ég ekki bundinn við þennan samning sökum þess að ég hafi átt sæti í utanríkismn. Þetta mál var á döfinni um það leyti, sem ég á annríkast í embætti mínu og þess vegna hafði ég sáralítil afskipti af því. Ég játa, að ég sá uppkastið að samningnum rétt áður en gengið var frá honum og gat athugað það stutta stund, en vitanlega var ekki hægt að fullu að gera sér grein fyrir slíku máli á stuttum fundartíma. Þess vegna þarf því ekkert að binda mig við þetta mál og ég vil halda því fram, að ég sé jafnvel óbundnari heldur en hv. 1. landsk. Ég er bara almennur meðlimur n. og þarf ekki að bera ábyrgð á öðru en mínu atkv., en hv. 1. landsk. er flokksformaður og ber sem slíkum skylda til að kynna sér rækilega öll mál, sem nokkru varða. Ég skal í þessu sambandi lýsa yfir því, að ég er engum böndum bundinn í þessu máli og sérstaklega ekki persónulegum böndum. Það hefir komið fram hér í d. og einn hv. þm. hefir beint lýst yfir því, að þessir samningar myndu öðlast samþykki sökum þess, að annars myndi stj. verða neydd til að segja af sér. Að því er þetta atriði snertir, þá hélt ég, að það væri svo sem ekkert launungarmál, að ég hirti aldrei, hvort þessi stj. sæti lengur eða skemur að völdum, svo að ég þykist hafa ósköp frjálsar hendur í þessu máli hvað það snertir. Og m. a. s. — ef nokkuð væri — þá væri jafnvel fremur ástæða til að vilja nota þetta mál til þess að losna við stj. og það blátt áfram af flokkslegum ástæðum. Ég þykist standa alveg frjáls og vísa alveg á bug öllum svigurmælum í þá átt. Og ég get gert meira — vísað svigurmælunum heim til föðurhúsanna. Það hefir ekki farið leynt og það hefir a. m. k. verið talsvert um það talað úti í bæ, að af fjórum Jó-Jóum þessarar d., þá sárlangaði þrjú Jó-Jóin í stjórnina. Ég legg ekkert upp úr þessu og trúi, að þetta sé hin argasta lygi, en ef á að fara út í slíkar persónulegar sakir, þá vona ég, að sjáist, að ýmsir geta átt högg í annars garði. Að því er þetta mál snertir, þá get ég ekki heldur kannazt við, að það sé sérstaklega stj., sem ætti að fara frá, ef þessir samningar yrðu ekki samþ. Ég lít svo á, að ef samningarnir yrðu ekki samþ., þá væri eiginlega réttast, að hreint og beint þingrof færi fram og það fyrir þá ástæðu, að ég sé ekki betur en að allt þingið beri ábyrgð á þessum samningum, hvort sem þeir eru góðir eða vondir. Í því efni er það að telja, að mér vitanlega komu engar raddir fram um það, að ekki ætti að semja við Norðmenn, og mér er alls ekki kunnugt um, að nokkur rödd hafi komið fram þess efnis, að ekki mætti semja við Norðmenn á sama grundvelli og samningarnir frá 1924. Ég þykist vera þess alveg viss, að ef Norðmenn eftir viðtali við stj. hefðu tekið aftur uppsögn sína og við það hefði verið látið lenda, þá hefði engin rödd risið upp á móti því á Alþ. Út af þessu hafði stj. ástæðu til að ætla, að ef hún gæti komizt að samningum, sem væru ekki verulega verri en samkomulagið frá 1924, þá myndi hún verða vitalaus. Því hefir einmitt af einum ræðumanni, sem hefir lýst sig mjög andvígan samningunum, verið lýst yfir, að munurinn á þessum samningum og samkomulaginu 1924 væri svo lítill, að það gæti aldrei orðið að neinu deiluatriði. Eins og ég tók fram áðan, þá var utanríkismálan. oftar en einu sinni dreift við þetta mál og orð látin fylgja um það, að það hefði enga þýðingu, þótt samningarnir væru gerðir með ráði utanríkismálan. Þótt það lægi nú nærri að reyna að firra mig ábyrgð og taka þetta gott og gilt, þá get ég ekki gert það, blátt áfram af því, að það er ekki rétt. Utanríkismn. er sjö manna n., jafnmannmörg og fjvn. Hún er skipuð mönnum, kosnum hlutfallskosningum, og hún er eina n. þingsins, sem skipuð er mönnum úr öllum flokkum. Því er ekki nema eðlilegt, að þegar slík n. er í einhverju gerðum stj. samþykk, þá verði litið svo á, að því beri að treysta og megi treysta. Yfirleitt er ekki síður að bera slík mál undir þingin í öðrum löndum, en þau munu jafnan vera borin undir utanríkismálan. og stundum undir aðrar n., sem eiga að hafa sérþekkingu á málinu, og lengra komast slík mál venjulega ekki. Það er talið öruggt, ef einróma samþykki slíkrar n. fæst, að málinu sé borgið. Af þessu vænti ég, að það sé ekki alveg þýðingarlaust, að utanríkismálan. hefir fjallað um málið, en þar fyrir vil ég alls ekki segja, að sjálfsagt sé að samþ. samningana fyrir það eitt atriði. Það geta — og þá sérstaklega eftir — komið fram ástæður, sem gera það að verkum, að það teldist skaðlegt fyrir þjóðfélagið eða hagsmuni landsins eins og einn nefndarmanna hefir látið í ljós. En út í það skal ég ekki fara. Hann hefir þar sínar skoðanir og ég mínar. Og ég hefi heldur ekki tóm til að kryfja, á hve réttum rökum slíkt er byggt. En það er ennþá eitt atriði í venju milli ríkja um þessi mál, sem er alveg sérstakt fyrir þetta mál, sem er, að við höfum notið samningsins að nokkru leyti. Á samkomulaginu, sem gert var í sumar, byggðist það, að látið var eins og samningunum hefði ekki verið sagt upp og allt látið standa við hið sama, og það er vitanlega gert í vændum þess, að samningurinn yrði samþ. seinna. Annars hefðum við áreiðanlega ekki notið þessa samnings í sumar, eins og farið hefir fram. Ég ætla ekkert að fara út í það, hve mikla hagsmuni Norðmenn hafi haft af því eða á hvorn hafi hallazt. Mér er þetta nóg, að raunverulega höfum við lifað síðasta sumar og til þessa dags eins og það væri fulltryggt, að samningarnir yrðu staðfestir. M. ö. o. við höfum étið okkur inn í vistina. Og þetta atriði er svo þungt á metum, að við, sem verðum að gjalda varhuga við því að brjóta ekki á nokkurn hátt í bág við alþjóðareglur um viðskiptahætti milli þjóða, höfum þarna alveg sérstaka ástæðu til að láta málið ekki veslast út af í höndunum á okkur.

Ég gæti nú látið þetta nægja, sérstaklega með skírskotun til þess, að samkv. minni aðstöðu í þinginu og með tilliti til þeirra, sem ég er fulltrúi fyrir, þá eru samningarnir sæmilegir, svo að mér eða mínum flokki ber ekki sérstaklega að vera þeim andvígur. En ég vil þó fara nokkrum orðum um eitt atriði, sem talsvert hefir verið talað um, og það ekki af fullum skilningi, að mér hefir virzt. Því hefir verið haldið fram hér, að menn hefðu verið ánægðir með samningana 1924. Ég hygg, að þetta sé alls ekki rétt. Ég veit að vísu, að til voru menn í þinginu, sem voru ánægðir með þá, en yfirleitt held ég, að menn hafi verið sáróánægðir, þótt ekki bæri mjög á því. Og til þess voru þau rök, að bæði fráfarandi stj. og aðkomandi stj. áttu þar hlut i, og þá vill oft verða svo, að ekki beri eins mikið á óánægju sem elli myndi. En víst er, að óánægjan var talsverð, og sú óánægja átti sér langar og djúpar rætur. Hún átti sér það langar rætur, að þær ná allt til þess tíma, er Norðmenn fóru fyrst að stunda veiðiskap hér við land. Það hefir jafnan verið óánægja yfir yfirgangi Norðmanna frá því fyrsta og það ekki að ófyrirsynju, því að það er vitanlegt, að Norðmenn hafa brotið flest ákvæði í fiskveiðalöggjöfinni og jafnvel fleiri lagareglur fyrr og síðar og hafa vaðið hér uppi. Út af þessu var óánægja mikil, en samt fór það svo, að landsmenn risu aldrei þar öndverðir á móti af neinum krafti. Ef við minnumst á hvalveiðarnar, þá vitum við, að þeim veiðiskap létti ekki af fyrr en síðasti hvalurinn var drepinn norður undir Kolbeinsey. Þá fyrst fengum við því framgengt, að hundinn var endir á hvalveiðar þeirra hér við land. Við vitum um síldveiðarnar, að yfirgangurinn var afskaplega mikill og keyrði fram úr hófi í þeim efnum. Þarf ekki annað en minna á, að gæzluskipið „Gunna“ tók á mánaðartíma 28 síldveiðiskip á Eyjafirði. Allt var þetta þolað. Óánægjuraddir komu að vísu fram hvað eftir annað, en þó var ekkert verulegt gert fyrr en þjóðin fékk sjálfstæði sitt viðurkennt. Þá er loks farið að hugsa um þessi mál, og þá er fiskiveiðalöggjöfin sett, til þess að lagfæra misbrestina. Það má segja, að fiskiveiðalögin séu góð og gild í alla staði, og þar er fylgt fornum og nú viðurkenndum landsréttindum. En svo gerist það undur skömmu fyrir 1924, að farið er að slaka á og hverfa frá ýmsum ákvæðum þessara laga, og útaf því reis óánægja, sérstaklega frá hálfu þeirra manna, sem unnu sjálfstæði landsins og vildu ekki láta traðka á réttindum þjóðarinnar. Síðan hefir borið talsvert á yfirgangi Norðmanna. En ágang þennan allan höfum við þolað vegna þess að atburðum Norðmanna fylgdi mikil vinna fyrir landslýðinn, og tekjur í landssjóð, enda þótt ýmislegt hafi verið gert til þess að minnka hann, auk fiskiveiðalaganna. Við höfum t. d. beitt ýmsum öðrum ráðum til þess að sporna við yfirgangi þeirra, t. d. með bættri strandgæzlu og byggingu síldarbræðslustöðvar. Ríkið og einstakir menn hafa stofnað og starfrækt síldarbræðslustöðvar. Og þetta hefir allt hnigið í þá átt að gera okkur sjálfstæðari í síldarútveginum gagnvart útlendingum og til að styðja að því, að við séum ekkert upp á þá komnir í þeirri atvinnugrein. Þetta langlundargeð þjóðarinnar áður en hún fór að reka þennan atvinnuveg, stafaði ekki af því, að hún hafi ekki viljað losna undan oki Norðmanna, heldur af hinu, að það þurfti á fleira að líta í viðskiptunum við þá. En nú er það enn augljósara, eftir að síldarútvegurinn er orðinn sjálfstæður atvinnuvegur hér á landi, að þá þykjumst við síður þurfa að líta til annarar handar. Hinsvegar þurfum við að sjá svo um, að þessum atvinnuvegi verði ekki traðkað til hnekkis og þá sízt af útlendingum. Það er okkur skylt, og er því sjálfsagt að gera það eins og efni standa til. Fyrir mitt leyti get ég sagt það, að ég óska einskis fremur en að við getum orðið algerlega frjálsir um okkar athafnir og lausir við öll nauðaviðskipti við Norðmenn. En vegna þess hvernig þetta mál er tilkomið, og að við höfum étið okkur inn í vistina hjá Norðmönnum, ef svo mætti segja, þá álít ég óráðlegt að staðfesta ekki þennan samning. Það eru líka mjög skiptar skoðanir um, hvaða ógagn okkur stafar af þessum samningi. En ef hinsvegar hinir illu spádómar um afleiðingarnar af samningnum rætast, þá er ég ekki í neinum vafa um, að þjóðin öll tekur rögg á sig. Og það er ekki einskisvert í slíku stórmáli sem þessu, að þjóðin öll verði á einu máli. En það gerist ekki nema einhver reynsla fáist af samningnum. Ég veit ekki til, að nokkurntíma hafi tekizt að stofna til samtakabyltingar, nema raun hafi á undan gengið. Það hefir ekki tekizt að knýja fram samtakamátt einnar þjóðar, nema að undangengnum raunum, sem hafa þrýst henni til þess. Á annan hátt er ekki hægt að fá þjóðina til þess að rísa samhuga á móti kröfum Norðmanna í þessum efnum. Þess vegna mun það greiða meira fyrir síldarútveginum, að þessi samningur verði reyndur. Ég skal játa, að út frá því, sem ég nú hefi sagt, þá er þessi samningur fullkominn nauðasamningur, og það verða yfirleitt allir samningar við Norðmenn, meðan við erum knúðir til við þá að semja. Þess vegna ættum við sem fyrst að reyna að komast hjá því, ef unnt er. En ég treysti mér ekki til að standa á móti þessum samningi nú. Og um samninginn má raunar segja, að fátt er svo með öllu illt, að ekki fylgi nokkuð gott. Mótstaðan gegn þessum samningi hlýtur að orka því, að landsmenn leggist nú allir á eina sveif um það, að gera þjóðina frjálsa í viðskiptunum við Norðmenn. Og ég óska einskis fremur en að svo verði. Því að fyrir mínum sjónum er það alltaf blettur á sjálfstæði þjóðarinnar, hvað við höfum orðið að þola öðrum þjóðum í viðskiptum, langt fram yfir það, sem þær láta bjóða sér.

Að síðustu vil ég svo aðeins mótmæla því, að það sé hægara að samþ. samninginn heldur en að fella hann. Það á aðeins við um aðstöðuna hér í þinginu, eins og um hvert annað mál. En hér er á fleira að líta, og þá sérstaklega aðstöðuna gagnvart öðrum þjóðum. Og ég vil ljúka máli mínu með því, sem ég hefi áður tekið fram, að það er mörgum sinnum hægara að segja samningnum upp fljótlega aftur heldur en að fella hann nú.