11.04.1933
Efri deild: 48. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1639 í B-deild Alþingistíðinda. (1862)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Bjarni Snæbjörnsson [óyfirl.]:
Mig langar til að víkja að því, sem hæstv. dómsmrh. sagði um ræðu mína í dag. Hann talaði um, að það væri hæpið fyrir þá þm., er væru á móti þessum samningi, að greiða atkv. gegn honum, þar sem þeir hefðu ekkert álit látið uppi um þetta í fyrra. En ég sagði, að það væri skylda þm. að bæta fyrir þá vanrækslu nú, og þyrftu þeir engan kinnroða að bera fyrir það. Ef það er Alþ. að kenna, hvernig komið er, þá er það skylda þess að taka afstöðu til þess að bæta úr því.
Þá talaði hæstv. ráðh. um þá miklu andúð, sem er nú gegn samningnum, þar sem engin andúð hefði heyrzt gegn ástandinu eins og það áður var. En það er einmitt svo, að þeir hafa vakið upp þá miklu andúð, sem var gegn samkomulaginu frá 1924, en sem nær því hafði lagzt í þagnargildi vegna einkasölunnar, sem útilokaði Norðmenn um skeið. Gremjan vekst upp aftur vegna þessa nýja samnings og kemst í sama kjölfar og áður var. Þetta verður hæstv. ráðh. að athuga og háttv. þm. líka. Ég er ekki í vafa um það, að sú krítik, sem gerð hefir verið á þessum samningi, hefir mikið gott í för með sér. Þótt við hljótum eitthvað illt af þessum samningi, þá er ég viss um, að þeir, er síðar fást við slíka samninga, munu láta þetta viti sér að varnaði verða.
Sami hæstv. ráðh. sagði, að ekki hefði verið fundið neitt að leppmennskunni fyrr en nú. En það hefir þó verið tekið fram bæði nú og áður, að það var hin mikla leppmennska, sem hratt síldareinkasölunni af stað.
Þá töluðu báðir hæstv. ráðh. um það, að landhelgisgæzlan myndi ekki verða erfiðari en áður fyrir ákvæði samningsins. En háttv. 2. þm. Árn. lýsti nú Norðmönnum svo, að enginn efi er á því, að auka verði landhelgisgæzluna. Hann sagði, að engin þjóð væri eins frek og Norðmenn. (MT: Þetta er ekki rétt!). Jú, hann sagði, að þeir hefðu brotið flest ákvæði í veiðilöggjöfinni og vaðið uppi.
Þetta sýnir frekju Norðmanna og hvað ber að varast frá þeirra hálfu í því efni. Hæstv. dómsmrh. sagði, að nauðsynlegt væri að samþ. þennan samning, vegna þess að horfur væru á, að útflutningur á frystu kjöti mundi minnka til Englands. Ég verð nú að segja það fyrir mitt leyti, að mér þykir innflutningsleyfið til Noregs lítið, miðað við þau fríðindi, er þeir fá. Og þar sem við verðum að láta svo mikið fyrir svo lítið, þá er hætt við, að aðrar þjóðir, sem við þurfum mikið til að sækja og sem vita auðvitað um þennan samning, heimti mikið. Og hvað eigum við þá að láta?
Hæstv. sami ráðh. sagði, að ef við felldum þennan samning, þá yrði ríkið að kaupa kjötið af bændum og eyðileggja það, því enginn markaður væri fyrir það utan lands eða innan. Ég er nú ekki á sömu skoðun. Neyzlan hér innanlands gæti orðið miklu meiri, ef kjötið væri í svo vægu verði, að fátækari menn bæjanna gætu neytt þess að mun. Ég veit að vísu, að bændur þurfa að fá viðunanlegt verð fyrir kjöt sitt. En mér finnst ekki nema heilbrigt, að atvinnubótafé sé að einhverju leyti varið til að kaupa kjöt handa fátæklingum, sem styrks njóta hvort sem er. Ýmislegt þessháttar mætti gera, ef einlægur vilji er fyrir hendi. Ég býst við, að vegna þeirra miklu tollmúra, sem loka viðskiptunum, þá verði framtíðarstefnan sú, að bændur framleiði sem fjölbreyttast fyrir sölu á innlendum markaði. Að því ber efalaust að keppa. Ég vil minna á það, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að niðurlagning síldareinkasölunnar hefði orðið til þess, að markaðsafstaðan með síldina hefði mjög breytzt frá í fyrra. Þetta vissu þm. ekki í fyrra. Og það afsakar þá, þó þeir hafi aðra afstöðu til þessara mála en þeir höfðu þá. Þeir geta því, þótt ekki væri nema vegna þessa stóra atriðis, kinnroðalaust fellt þennan samning nú.
Að endingu langar mig til að minnast á eitt atriði, sem hv. 2. þm. Árn. talaði um. Hann sagði, að rétt væri að samþ. þennan samning, því þegar þjóðin sæi, hve bölvaður hann væri, þá mundi hún sameinast um að segja honum upp. Ég hefi nú aldrei heyrt annað eins. Það á að gera þjóðinni stóra bölvun til þess að sameina hana um að hrinda því af sér, sem hægt er að fyrirbyggja. Ég held, að það væri nær að gera það í upphafi. Þjóðin mun eflaust sjá þrátt fyrir það, að ekki var rétt að gera þennan samning. Ég get getið þess, að við hv. 2. þm. Árn. munum báðir vera mótfallnir byltingum kommúnista. Það er kannske rétt að láta þá skalta og valta, en það er þó of seint að grípa til góðra ráða, þegar allt er komið í kalda kol. Þótt ég segði ekki neitt á síðasta þingi, þá tel ég afsakanlegt, þótt ég sé á móti þessum samningum nú. Upplýsingar þær, sem síðan hafa komið fram í þessu máli, hafa vakið mig og alla landsmenn og vakið upp aftur andúð þá, sem var gegn samningnum 1924. Það var neyðarsamningur, og það er þessi líka. Og þetta viðurkenna nú orðið allir, nema hæstv. stj.