31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í D-deild Alþingistíðinda. (1872)
158. mál, sútunar- og skófatnaðarverksmiðju
Jónas Jónsson:
Þetta mál hefir verið hjá iðnn., og hefir hún ekki enn skilað áliti í því, enda hafði nefndin ekki búizt við, að í dag færi fram síðari umr. um till. En ég vil samt taka fram ýmsar upplýsingar, sem n. hefir aflað sér um þetta mál og ekki hafa komið fram áður. Þetta mál er borið fram af mikilli trú, bæði innan þings og utan, en því miður verð ég að segja það, að upplýsingar þær, sem n. fékk, staðfesti ekki vonir flutningsmanna. Ég vil þá skýra frá vitnisburði 4 manna, sem n. hefir borið þetta mál undir. Þetta voru menn, sem vegna atvinnu sinnar og þekkingar hafa sérstaklega góða aðstöðu til þess að gefa upplýsingar í þessu máli.
Sá fyrsti, sem n. talaði við, var aðaleigandi skóverzlunar Lárusar Lúðvígssonar. Hann tjáði okkur, að skófatnaðargerð úr íslenzkum skinnum væri ekki álitlegt fyrirtæki. Nú væri gert þar í sambandi við verzlunina talsvert af inniskóm handa konum, en ekki úr íslenzku skinni, heldur erlendu. Hann taldi þessa skógerð verndaða af innflutningshöftunum, og mér skildist á honum, að henni yrði hætt, þegar innflutningshöftunum yrði létt af. Hann hafði ekki trú á því, að nokkuð verulegt yrði unnið af skófatnaði úr íslenzkum skinnum, þó að hér kæmist upp stór og fullkomin sútunarverksmiðja. Í skó þá, er mest eru notaðir, eru höfð öðruvísi skinn. Ég spurði, hvort sólaleður væri ekki mikið notað á viðgerðarstofu hans, en hann kvað það lítið og allt útlent, og að ekki væri mikil von til þess, að íslenzkt skinn yrði notað í sólaleður að ráði. Hann benti einnig á það, að miklir erfiðleikar eru hér á því að koma upp skógerð, sem sé samkeppnisfær við erlendar verksmiðjur. T. d. væru sumar vélarnar í þessum iðnaði svo „monopoliseraðar“, að þær væru eign verksmiðjanna, sem búa vélarnar til, og ekki seldar, heldur lánaðar. Hann kvaðst hafa reynt að fá slíkar vélar hingað til lands, en vélaeigendurnir hefðu heimtað að mega senda mann með þeim og sett slík skilyrði, að stofnun fullkominnar skóverksmiðju hér hefði orðið miklum erfiðleikum bundin. Þessi iðnaður stendur á háu stigi í stóru löndunum; við hann þarf stórfellda tækni, en hér á landi er markaður mjög lítill.
Næst fór n. til Haralds Árnasonar, þess kaupmanns, sem selur einna mest af allskonar fatnaði, þar á meðal kápur kvenna og karla úr allskonar skinnum. Og svör hans gáfu sízt tilefni til meiri bjartsýni. Úr hans verzlun eru ekki seldar neinar kápur, sem gerðar eru úr íslenzkum skinnum. Áður hafði gengið talsvert út af bílstjóratreyjum úr skinni, en nú, síðan bílar urðu allir lokaðir, er nærri fyrir það tekið, þar sem kápurnar þykja of heitar.
Þá talaði n. við son Jóns Brynjólfssonar, en þeir feðgar eru með þeim fáu kunnáttumönnum í sútun, sem til eru hér á landi. Var hann nokkru bjartsýnni á þetta mál en þeir tveir, sem n. hafði áður talað við.
Firmað Jón Brynjólfsson hefir um nokkur ár selt dálítið af sútuðum sauðskinnum til Þýzkalands, en við byltinguna í vetur hefir tekið fyrir þá sölu. Sonur Jóns Brynjólfssonar sagði, að hann hefði getað selt dálítið af sútuðum skinnum frá sútunarverksmiðju þeirra feðga, einkum í kvenkápur og hefði verið saumað úr þeim hér í Reykjavík, en skinnin lítið selzt erlendis.
Síðast fann nefndin að máli Sigurð Kristjánsson, forstjóra í Sambandi ísl. samvinnufélaga, en hans tilraun var í byrjun á Akureyri, og var þá nokkuð rætt um sútun í sambandi við þá ráðagerð að koma á stækkun á Gefjun, en það hefir verið dregið, þangað til séð verður, hvernig þessari till. reiðir af, því að hann sagði, að ef ríkið ætlaði að fara að setja slíkt fyrirtæki á stofn eða leggja öðrum fram fé til þess, þá væri gagnslaust fyrir aðra að byrja þar á samkeppni. Hann lét það uppi, að engar líkur væru til hagnaðar fyrir bændur að selja sútuð skinn til útlanda, vegna hins háa tolls, sem á þau er lagður þar. Hrávaran, óunnu skinnin, sleppur tolllítið eða tolllaust, en á þau sútuðu kemur svo hár tollur, að þau verða ekki flutt inn í önnur lönd, svo að svari kostnaði. En ráðagerð Sambandsins er sú, að færa út kvíarnar á Akureyri, þar sem nú er byrjað með gærurotun, og koma upp sútun, sem sé nægilega stór til að fullnægja allri þörf innanlands, eins og hún er nú eða verður í náinni framtíð.
Nú hefir deildin tekið málið til lokameðferðar með því að samþykkja ábyrgð á allmikilli fjárhæð til að stofna sútunarverksmiðju, sem því miður myndi verða ofurefli þeim markaði, sem landsmenn eiga aðgang að.