01.06.1933
Neðri deild: 89. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í D-deild Alþingistíðinda. (1887)

209. mál, víxilskuldir á Austfjörðum vegna Síldareinkasölu Íslands 1931

Frsm. (Þorleifur Jónsson):

Í aprílmán. fluttu 1. þm. S.-M. og þm. Seyðf. frv. um greiðslu víxilskulda á Austfjörðum vegna Síldareinkasölu Íslands 1931. Frv. þessu var vísað til fjvn. Þar eð frv. mælti svo fyrir, að ríkissjóður greiddi þessar víxilskuldir, gat fjvn. ekki gefið því meðmæli sín, með því hún lítur svo á, að ríkissjóðurinn sé ekki ábyrgur fyrir skuldum einkasölunnar. Hinsvegar verður því ekki neitað, að síldarseljendur á Austfjörðum hafa orðið harðar úti en nokkrir aðrir síldarseljendur árið 1931, þar sem norðanlands og vestan fengu útgerðarmenn allar tunnur og salt frá einkasölunni, greiddi hún og verkunarlaun og mörgum að auki 2 kr. fyrir tunnu. En á Austfjörðum urðu útgerðarmenn sjálfir að sjá sér fyrir salti og tunnum að miklu leyti og greiða öll verkunarlaun. Austfirðingar seldu einkasölunni þetta ár 9280 tunnur og fengu ekki einn eyri fyrir. Þeir fengu ekki annað en yfirlýsingar einkasölunnar um, að hún skyldi ábyrgjast greiðslur á bankalánum, sem útgerðarmenn tækju til að standast kostnaðinn, allt að ákveðinni upphæð fyrir hverja verkaða síldartunnu. Upp á þetta loforð tóku síldareigendur bankalán í víxlum, og eru þær upphæðir, sem óborgaðar standa, um 69 þús. kr.

Þessir víxlar eru víst flestir í vanskilum, og verða bankarnir að ganga að skuldunautum, enda dómur fallinn a. m. k. í einu víxilmálinu. Það vill nú svo til, að þetta tap kemur einmitt niður að mestu leyti þar, sem bágastar ástæður eru á Austfjörðum, nefnil. Eskifirði og Reyðarfirði. Skuldir út af þessu, hvílandi á mönnum á Eskifirði, eru um 43 þús. kr. og á mönnum á Reyðarfirði um 11600 kr. Það er meðfram vegna hinna miklu erfiðleika, sem fólk á þessum stöðum á við að stríða og kunnugt er frá því í vetur, að meiri hl. fjvn. gat samizt upp á að bera fram þáltill. þá, sem hér liggur fyrir á þskj. 850. Er aðalefni hennar, að stj. reyni að hafa einhver áhrif á það, að bankarnir fresti víxilmálunum út af umræddri síldarverzlun, og var meining n. sú, að til þess að víxilréttur glatist ekki þá framlengi bankarnir víxlana, og yrðu þeir þá hækkaðir sem vöxtum nemur. Því n. ætlast alls ekki til þess, að ríkið taki að sér neina ábyrgð eða greiðslu á þessum skuldum. — Í raun réttri er þetta mál, sem viðkemur skilanefnd einkasölunnar, og lagalega eiga þessir menn aðeins aðgang að búi einkasölunnar. Ég hefi hér í höndum bréf frá skilanefnd síldareinkasölunnar; dags. 25. febr. Vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa það upp. Það hljóðar svo:

„Sem svar við bréfi ráðuneytisins, dags. 21. þ. m., út af erindi Eiríks Bjarnasonar, Eskifirði, viljum vér geta þess, að vér sjáum oss eigi fært að greiða áminnztar víxilkröfur að svo komnu máli. Landsbanki Íslands og Útvegsbanki Íslands hafa hvor um sig tilkynnt þessar kröfur í bú einkasölunnar og munu þær verða teknar til greina við búskiptin sem hverjar aðrar venjulegar kröfur í búið.

Að öðru leyti viljum vér geta þess, að í erindinu er rétt frá skýrt um, hvernig þessar kröfur eru til orðnar og að útgerðarmenn eystra hafa orðið fyrir meira tjóni en aðrir við gjaldþrot einkasölunnar“.

Af þessu sést, að málið er komið á réttan stað, til einkasölunnar. Ef till. meiri hl. fjvn. verður samþ., þá er ætlazt til, að hún geti orðið til þess, að ekki verði gengið að mönnum á Austurlandi, meðan málum einkasölunnar er ólokið.

Ég hefi svo ekki fleira að segja. Ég vænti þess, að hv. deild telji till. sanngjarna og geti samþ. hana.