27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í D-deild Alþingistíðinda. (1899)
204. mál, búfjársjúkdómar
Atvmrh. (Þorsteinn Briem):
Ég vil taka undir þetta mikilsverða mál fyrir annan aðalatvinnuveg þjóðarinnar og ég tel stj. skylt að verða við þessari áskorun, ef þáltill. verður samþ. Ég vil vænta þess, að það megi koma þessari rannsókn við á ódýran hátt einmitt vegna þess, að þetta þing hefir með heimild í fjárl. skapað stj. aðstöðu til þess að útvega rannsóknarstofu háskólans betra og hentugra húsnæði til rannsóknanna. Hinsvegar vil ég taka það fram, að eins og nú er um fjárhag landsins og eftir þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið á þessu þingi, sem hljóta að íþyngja ríkissjóði allmjög, þá mun verða gætt hins ýtrasta sparnaðar í framkvæmd þessara rannsókna. Ef í minn hlut fellur að hafa með þetta að gera, mun ég fela dýralæknum að útvega þau efni, sem til rannsóknanna þarf, en að öðru leyti fari rannsóknin fram í höndum þess manns, sem ríkið hefir í þjónustu sinni hvort sem er.