27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í D-deild Alþingistíðinda. (1902)

204. mál, búfjársjúkdómar

Halldór Stefánsson:

Ég held, að það sé enginn ágreiningur milli mín og hæstv. ráðh. um, hvernig skuli unnið að þessum rannsóknum. En það getur verið, að honum hafi ekki þótt ég komast rétt að orði. Ég talaði um, að rannsóknir dýralæknanna ættu að fara fram í samráði við ríkisstj., en hún myndi aftur haga þeim eftir forsögn forstöðumanns rannsóknarstofu háskólans. Ég hygg, að það mundi gagn að því og vera sjálfsagt að láta dýralæknana, hvern í sínu héraði, vinna að rannsóknum eins og kostur væri á. (Atvmrh.: Já, aðstoða rannsóknarstofuna).