12.04.1933
Efri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (1924)
86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs
Magnús Torfason:
Ég stend ekki upp til að ræða frekar um þetta frv. Með því, sem fólst í ræðu minni í gærkvöldi, gerði ég grein fyrir atkv. mínu fullnægjanlega. Ég hafði alls ekki ætlað mér að tala, en það er hv. þm. Hafnf., sem kom því til leiðar, að ég stóð upp aftur. Hann fór sem sé með nokkrar setningar eftir mér, sem ég nenni ekki að láta standa ómótmælt í þingtíðindum. Hann hafði þau orð eftir mér, að engin þjóð hefði sýnt aðra eins frekju og Norðmenn. Mér hefir aldrei nokkurn tíma dottið í hug að segja slíkt. Það væri sú reginvitleysa að bera slíkt í munni sér, að ég get jafnvel ekki hugsað mér, að maður, sem hefir lesið smáágrip af mannkynssögu, gæti látið sér slíkt um munn fara. Það eru svo ákaflega mörg dæmi sögunnar fyrir því, að öðrum þjóðum hefir verið sýnd meiri frekja en Norðmenn okkur Íslendingum í okkar viðskiptum. Ég get svona til skýringar minnt á það, að á 17. öld brytjaði ein þjóð niður rúmlega einn þriðja af nágrannaþjóð sinni á fáum árum.
Þá kvað hann mig hafa átt að segja, að það þyrfti að samþ. samninginn til að sýna, hve bölvaður hann væri. Ég verð nú að játa það, að þetta þarf ekki að vera bein vitleysa. Það er haft eftir merkum stjórnmálamanni, sem a. m. k. jafnast fyllilega á við okkur hv. þm. Hafnf., að hann hafi látið sér um munn fara, að ástandið þyrfti að versna, til þess að batna. Svo að hugsunin er alls ekki vitleysa. En það var bara þetta, að ég sagði ekki neitt í þessa átt. Það, sem ég sagði, var það, að ef afleiðingarnar af þessum samningi yrðu eins vondar og hv. þm. Hafnf. og fleiri vildu vera játa, þá hefðu þeir þá huggun, að þeirra málstaður mundi vinna sigur með þessari þjóð. En hinsvegar myndi alls ekki vera hægt að koma þjóðinni upp á spádómum einum, sem menn greindi á um, hve mikils virði væru og hve mikið lægi í.