12.04.1933
Efri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1666 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Magnús Torfason:

Út af þessum deilum við hv. þm. Hafnf. þarf ég ekki annað en að skjóta máli mínu til þingskrifaranna. Ég hygg, að þeir beri mér vitni, en það vildi svo til, að hv. þm. las upp orð eftir mér og það var ekkert af því, sem hann hafði sagt áður, svo að hann hefir eiginlega líka borið mér vitni. Orðinu „frekju“ bætti hann við sem ályktun frá sínu eigin brjósti. Ég lýsti framferði Norðmanna hér í gamla daga og það af þekkingu, því að ég var yfirvald á Ísafirði, þegar þeir voru að hverfa þaðan, og mig minnir, að fyrsta málið, sem nokkru skipti og ég hafði til meðferðar fyrir vestan, væri tollsvikamál Norðmanna. Svo hnýtti hann aftan í því til viðbótar, að ég segði ýmislegt, sem ég ekki vildi sagt hafa. Ég veit ekki til þess, að ég hafi þurft að taka orð mín aftur á þingi eða beðið á þeim velvirðingar. Hvað þessa ræðu mína snertir, hélt ég, að ég hefði verið alveg kaldur og hefði ekki verið nokkur ástæða til þess að ég hlypi sérstaklega á mig, því að mér var þetta ekkert kappsmál, sem líka kom fram m. a. í því, að hv. þm. Hafnf. hafði ekkert að athuga við mína ræðu. Ég býst við, að okkur fari öllum svo, að við segjum eitthvað öðruvísi en við myndum við síðari athugun viljað sagt hafa. Ég hygg, að það sé enginn af okkur svo mikill ræðumaður, að hann geti tekið fyrir, að slíkt komi fyrir hann. Ég hlustaði með talsverðri athygli á ræðu hv. þm. Hafnf. um þetta málefni, og mín ályktun af þeirri ræðu var, að hann hefði eiginlega ekki sagt eitt orð af því, sem hann hefði viljað sagt hafa; ætla ég svo hv. þm. að draga frekari ályktun af því.