06.04.1933
Efri deild: 44. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)

114. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Ingvar Pálmason:

N., sem, hafði þetta frv. til meðferðar, hefir ekki átt kost á því að taka til meðferðar þessa brtt., sem nú liggur fyrir. En við fljótt álit virðist sem þessi brtt. sé efnismeiri en frv. sjálft, því sú breyt., sem frv. fer fram á að gera, er í sjálfu sér smávægileg og eðlileg, og mér virðist, að þessi brtt. sé miklu efnismeiri og afdrifaríkari, og þess vegna verð ég að segja fyrir mitt leyti, að ég er ekki við því búinn að greiða atkv. um þessa brtt. Ég skal játa, að það geti verið nokkur ástæða til þess, að breytingin verði gerð, þó ég í fljótu bragði sjái það nú ekki, að það sé nauðsynlegt, en ég vil ekki fortaka það. Ég vildi því óska þess mín vegna, að málið yrði tekið út af dagskrá og n. athugaði brtt., því á því stigi, sem málið er nú, treysti ég mér ekki til að greiða atkv. um það.