10.04.1933
Neðri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1685 í B-deild Alþingistíðinda. (1977)

90. mál, vitagjald

Magnús Jónsson:

Ég þakka hv. n. fyrir afgreiðslu þessa máls. Ég er henni sammála um það, að ég hefi engan áhuga á því að létta neinum gjöldum af þeim gufuskipafélögum, sem hingað sigla skipum sínum. Tilgangurinn með þessu frv. er einungis sá, að reyna að koma í veg fyrir, að landið verði af þeim hagnaði, sem því er samfara, að þessi félög haldi áfram ferðum sínum hingað til lands.

Síðan málið fór til n. hefir borizt skeyti, þar sem Hamborgar-Ameríkufélagið getur þess, vegna fyrirspurnar, að það sé að vísu ekki rétt, að það hafi þegar strikað Ísland út af áætlun skipa sinna, en segir samt, að lækkun vitagjaldsins sé skilyrði til þess, að það geti látið viðkomur skipanna hér við land halda áfram. Ísland er ekki svo stór liður í þessum ferðum skipafélaganna, að þau eigi nokkuð erfitt með að strika það út. Það mun vera fátt af farþegum, sem fara með skipunum vegna þess, að þau koma hér við, en félögin vilja veita þeim þessa skemmtun, ef ekki stafar sérstakur kostnaður af.

Frv. er borið fram til þess, að ríkissjóður verði ekki af þeim óbeina hagnaði, sem leiðir af viðkomum þessara skipa hér, af því að miklu fleiri skip mundu koma hingað frá þessum félögum, ef vitagjaldið yrði lækkað, og vænti ég þess, að hv. þdm. samþ. frv.

Umr. frestað um stund, en síðar á sama fundi var umr. fram haldið.