27.04.1933
Efri deild: 57. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1687 í B-deild Alþingistíðinda. (1985)

90. mál, vitagjald

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta er komið frá hv. Nd., og er efni þess það, að lækka vitagjöld fyrir erlend skemmtiferðaskip, sem hingað koma. Eftir núgildandi lögum er það 40 aur. pr. smál., en frv. gerir ráð fyrir, að það lækki niður í 20 aur. pr. smál. Þeir, sem flutt hafa frv., og aðrir kunnugir menn telja, að hin erlendu skemmtiferðaskip komi síður hingað fyrir það, hve vitagjaldið sé hátt. Mér er t. d. tjáð, að það geti numið frá 5000—6000 kr. fyrir skip eins og það er nú. Með frv. þessu er farið fram á skattalækkun, og því tekjumissi fyrir ríkissjóðinn, eftir því sem það lítur út í fljótu bragði. En þar sem það hinsvegar er talið tap fyrir ríkissjóðinn og þjóðina í heild, að skip þessi vilja ekki koma hingað vegna þessa háa vitagjalds, á að verða ávinningur í því að lækka gjaldið, ef skipin taka Ísland þá frekar upp í áætlun sína.

Ég geri ráð fyrir, að hv. dm. hafi gert sér ljósa grein fyrir þessu máli og séu því reiðubúnir að greiða um það atkv. F. h. fjhn. legg ég til, að frv. verði samþ.