10.04.1933
Neðri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (1995)

101. mál, hafnargerð á Húsavík

Ingólfur Bjarnarson:

Ég vil þakka hv. sjútvn. fyrir afgreiðslu þessa máls, enda þótt einn nm. hafi skrifað undir nál. með fyrirvara, vegna þess að hann telur hafnarlög þau, sem sett hafa verið síðustu árin, yfirleitt viðsjárverð. En í þessum fyrirvara felst ekki nein bending í þá átt, að hv. þm. ætli sér að vera á móti þessu frv. Þvert á móti hefir hann lýst því yfir, að hann áliti, að þessi hafnargerð hafi fyllilega jafnmikinn rétt til framlags úr ríkissjóði sem ýmsar þær hafnir, er lög hafa verið sett um. Ég treysti því fyllilega, að hv. dm. haldi áfram þeirri stefnu, sem tekin hefir verið upp í þessu efni, og samþ. frv.