17.03.1933
Neðri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1713 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)

107. mál, happdrætti fyrir Ísland

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég óska þess fyrir mitt leyti, að málinu verði vísað til fjhn. Ég ætla að tala um það við n., að hún athugi í þessu sambandi þá möguleika, sem til þess eru, að þetta geti orðið tekjuöflun fyrir ríkið sjálft. — Ég er því í sjálfu sér hlynntur, að háskólinn fái slíkt einkaleyfi, en það er venja, að ríkissjóður áskilji sér nokkurt gjald fyrir slík leyfi. Og það er nú svo ástatt fyrir ríkissjóði, að ekki er annað hægt en heimta gjald fyrir þetta, þótt þar sé verið að vinna að menningarmálum. Háskólinn getur verið ánægður með, að hann taki fyrst mestan, en svo minnkandi hluta af fénu, ef aðeins er miðað við ágóðann.