25.03.1933
Neðri deild: 36. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1716 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)
107. mál, happdrætti fyrir Ísland
Haraldur Guðmundsson:
Það er vissulega alveg rétt, að það er mikil þörf á því að bæta úr húsnæðisskorti háskólans, og ég tel engan vafa á því, að allir þm. séu sammála um það. En hitt er víst, að margt er enn meir aðkallandi nú á þessum tíma. Ég býst því ekki við að geta greitt þessu frv. atkv. mitt. Ég álít, að það sé gersamlega ómögulegt að forsvara það, að þetta þing hætti svo störfum, að það geri ekki ýmsar stórfelldar ráðstafanir vegna kreppunnar. Og það er alveg víst, að það verður ekki nema kák, ef ekki er tryggt um leið, að fé fáist til þessa. Ég býst við því, að síðar verði bornar fram í þessari hv. d. till. um slíkar ráðstafanir. Ég sé ekki, að hægt sé að afla þessa fjár með skattaálagningu. Ég álít, að leita beri innanlands eftir lántöku fyrir ríkissjóð. Hér er nú laust sparifé, innstæðufé og skírteini í hlaupareikningum, sem nemur alls 60 millj. kr. Og ég álít sjálfsagt fyrir ríkissjóð að leita í þá átt eftir fé til lántöku til kreppuráðstafana. Hingað til hefir ríkissjóður ekki leitað eftir lánum innanlands, heldur til útlanda aðeins.
Það er orðin reynsla annara þjóða, að þau skuldabréf ríkisins, sem auðseldust eru, eru ekki þau, sem tryggð eru einungis með ákveðnum vöxtum, heldur þau, sem fylgir von um vinninga, ekki ósvipað því, sem hv. þm. G.-K. orðaði það, „að spilaþörf þjóðarinnar væri vakandi“ og að það þyrfti að beina henni í réttan farveg. Það er alveg rétt, hvort sem mönnum þykir það gott eða illt, að það er jafnan þó nokkur fjöldi af fólki, sem vill eiga eitthvað dálítið á hættu. Svíar hafa tíðkað happdrættislán, bæði með því að greiða enga vexti af skuldabréfunum og sumpart með því að greiða vexti af nokkrum hluta, en láta annan ágóða, sem um er að ræða af bréfunum, vera vinning í happdrætti. Teldi ég þá leið heppilega hér.
Mjög sennilegt er það, að ef hvorttveggja væri reynt í senn, bæði að fá lán fyrir ríkissjóð innanlands og líka að stofna til happdrættis, mundi það að sjálfsögðu draga mjög hvað frá öðru. En ég legg meiri áherzlu á, að reynt verði að gera ráðstafanir til þess að bæta úr kreppuvandræðunum heldur en að stofnað verði til háskólabyggingar, eins og nú stendur á.
Í grg. frv. er gert ráð fyrir því, að ágóðinn af þessu happdrætti, ef allir miðar seljast, verði 300 þús. kr. á ári. Það er þess vegna bert, að það muni taka alllangan tíma að safna fé með þessu móti til háskólabyggingar, þótt allir miðar seljist, sem ekki eru þó líkur til. Ef ekki seldist nema helmingur miðanna, þá fengjust 130 þús. kr. árlega. Ef verr seldist, gæti svo farið, að tíminn þrefaldaðist, sem þyrfti til að koma háskólanum upp. Það yrði að vísu nokkur atvinnubót að því að byggja þetta stórhýsi, en þó hverfandi lítil, eins og sést á því, hve tekjurnar eru litlar, sem gert er ráð fyrir á hverju ári. Og ekki er líklegt, að byrjað yrði á byggingu á fyrstu árunum.
Eins og ég hefi tekið fram, álít ég brýnasta þörf á að verja því fé, sem á þennan hátt gæti aflazt, til ráðstafana vegna kreppunnar. En þegar hún er liðin hjá, gæti ég fellt mig við, að sú leið yrði farin, sem um ræðir í brtt. á þskj. 229, að stofna sérstakan byggingarsjóð, sem yrði varið til að reisa ýmsar opinberar byggingar, og sé ég ekki, að þá kalli annað frekar að í því efni en háskólabygging, stjórnarráðshúsbygging og breyt. á húsnæði Alþ. sjálfs.