28.03.1933
Neðri deild: 38. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1731 í B-deild Alþingistíðinda. (2072)

107. mál, happdrætti fyrir Ísland

Hannes Jónsson:

Það er auðséð, að hér er á ferðinni stórt mál og mjög þýðingarmikið fyrir allan landslýð, þar sem svo mjög er flýtt umr. þess og afgreiðslu, að sjálfur flm. þarf að fá afbrigði frá þing sköpum til þess að koma að brtt. við frv. Þykir mér að vissu leyti gott, að hann hefir lent í því sama og ég, sem hefi einnig orðið of seinn með brtt., sem ég ætlaði að koma hér að. Ég bjóst nefnil. alls ekki við, að þetta mál kæmi á dagskrá í dag. Við hv. þm. Borgf. ætluðum að flytja saman brtt. við frv., en urðum of seinir að láta prenta þær, eftir að við sáum, að búið var að taka málið á dagskrá. Verð ég nú að vænta þess, að hv. d. taki þeim brtt. eins vel og brtt. hv. 3. þm. Reykv., og leyfi þeim að koma hér til atkv. nú. Sjái d. sér það ekki fært, verð ég að óska eftir, að hæstv. forseti taki málið út af dagskrá, svo okkur gefist tækifæri til að leggja brtt. okkar prentaðar fyrir hv. d. áður en þessari umr. er lokið.

Undanfarandi daga hefir oft verið á það minnzt hér í hv. d., að stærsta verkefni þings og þjóðar á yfirstandandi tíma væri það, að reyna að létta undir með atvinnuvegum landsins og hjálpa þeim til að standast þá kreppu, sem þeir eiga nú við að stríða. Og það er sízt að ástæðulausu, að slíkar raddir koma fram. N. var skipuð fyrir jólin í vetur, sem starfað hefir að því að undirbúa till. um ráðstafanir í þessa átt, sérstaklega að því er landbúnaðinn snertir. Hún hefir haft marga menn í sinni þjónustu, svo mikils hefir þótt við þurfa til þess að undirbúningur þessara mála væri sem beztur. Enn eru engar till. fram komnar frá þessari n. En það stendur ekki á till. úr öðrum áttum, hvað sem þær verða nú landbúnaðinum að miklu liði. Hv. 3. þm. Reykv. hefir nú fengið menntmn. til þess að flytja frv. um að leggja stórfé í háskólabyggingu. Sami hv. þm. hefir flutt hér í d. frv. um að nema úr gildi þau lög, sem takmarkanirnar á innflutningi á óþörfum varningi byggjast á, til þess, að mér skilst, að bæta úr atvinnuleysi þeirra manna, sem lifa á því að selja hér þann ónauðsynlegasta varning, sem til landsins er fluttur.

Nú fannst mér ekki nema eðlilegt, að tekjuöflun sú, sem hugsuð er til þess að reisa háskólabyggingu, væri fyrst um sinn notuð til að stuðla að því, að ríkissjóður geti haft handbært fé til þeirra ráðstafana, sem atvinnuvegunum eru nauðsynlegar. Og í þá átt miðuðu brtt. þær, sem ég flutti hér við 2. umræðu þessa máls. Í þeim var ákveðið, að ráðstafa ekki þessu fé fyrir sig fram, hvorki nú eða endranær, og ég treysti þinginu að vera bæði nú og á næstunni svo varfærið, að það muni ekki fara að binda þetta fé í háskólabyggingu. En þetta fékk nú ekki náð fyrir augum hv. d. Ég og hv. þm. Borgf. höfum því stigið þetta spor til þess, að hv. dm. gefist tækifæri til þess að sýna sinn virkilega hug til þess alvöruástands, sem nú er yfir þjóð vorri. Það er ekki nóg að skipa nefndir, sitja í n. og koma með till., kannske seint og síðar meir og of seint til þess að geta komið að nokkru gagni. Það verður að gripa þau tækifærin, sem gefast, og þann stuðning, sem hægt er að fá, til þess að eitthvað megi verða gert, sem lið sé að.

Þær brtt., sem við flytjum nú, eru breyt. við 1. málsgr. 1. gr. frv., þannig, að ráðuneytinu sé gefin heimild til þess að stofna íslenzkt happdrætti með þeim skilyrðum, sem þar eru fram tekin. Hin brtt. er við e-lið 1. gr., þar sem tekið er fram um það, hvað einkaleyfið eigi að standa lengi og hvernig ágóðanum skuli verja. Þann lið orðuðum við upp á þann hátt, að ágóði happdrættisins skuli til ársloka 1936 renna í ríkissjóð upp í greiðslu vegna kreppuráðstafana. Svo er að lokum brtt. við 2. gr., þar sem við getum fallizt á ákvæði frv. um það, að eftir þennan tíma skuli ágóðinn af happdrættinu fara til þess að mynda byggingarsjóð fyrir opinberar byggingar. Þetta eru þær breyt., sem við höfum farið fram á, að verði gerðar á frv. við þessa umr. Nú gefst mönnum tækifæri til þess að láta það í ljós, hvort þeir álíti meira virði fyrir þjóðina á þessum tímum að byrja á nýrri háskólabyggingu, milljónabyggingu hér í Reykjavík, eða reyna að reisa við ósköp lítið þá bændur landsins, sem eiga við verstu kjörin að búa. Þeir hv. þm., sem hafa mest látið uppi um það, að þar kreppti mest að og þar væri hjálpin svo brýn, að það yrði að taka á sig ýms óþægindi, m. a. með óeðlilegri samvinnu milli flokka til þess að eitthvað mætti úr rætast á þessu sviði, fá nú tækifæri til þess að sanna það, að þetta sé eitthvað annað en orðin innantóm. En aftur á móti þeir menn, sem finnst, að allt hafi verið lagt á hilluna fyrir stórbyggingar hér á landi, vilja nú kannske grípa tækifærið til þess að auka enn við einni milljónabyggingu, og þeir eiga þá erfitt með að færa þjóðinni heim sanninn um það, að það hafi allt verið heilagur sannleikur, sem þeir á undanförnum árum hafa verið að brýna þjóðina á og andstæðinga sína, að það hafi verið varið allt of miklu fé í þessu skyni.

Ég skal ekki fjölyrða mikið um þetta nú að þessu sinni, en það getur vel verið, að mér gefist tækifæri til þess að árétta það betur, sem ég hefi sagt um þetta. Og ég er þess fullviss, eftir þeirri atkvgr., sem fór fram við 2. umr., að það er ekki vanþörf á því að gera sér ljóst, að hverju er stefnt, ef haldið er áfram á þeirri stefnu, að festa hundruð þús. og jafnvel millj. í steinkumböldum hér í Reykjavík.