18.04.1933
Neðri deild: 52. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (2119)

160. mál, veð

Héðinn Valdimarsson:

Hér er ekki um að ræða, hvort atvinna fáist eða ekki. En þó held ég ekki, að hv. frsm. geti bent á beina atvinnuaukningu þessu frv. fylgjandi. Heldur skilst mér, að verkamenn og ríkissjóður séu sviptir réttindum, sem þeim eru ætluð samkv. 83. gr. skiptalaganna, og þau flutt yfir á bankana. Til þessa sé ég enga skynsamlega ástæðu, því að þó að þeir þurfi og að hafa lán sín tryggð, þá eru fleiri, sem heimtingu eiga á því samkv. 83. gr. skl. Hvað snertir fylgifé, þá má teygja það hugtak, og hefir verið gert svo mikið að þessu, að menn hafa ekki getað fengið tryggingu fyrir fé sínu, því að allt veðhæft var þá uppurið. Engin ástæða finnst mér til þess að lögfesta þetta. Bankarnir hafa nú þegar svo mikil ítök í útveginum, að tæpast er æskilegt, að bætt sé við.