18.04.1933
Neðri deild: 52. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (2121)

160. mál, veð

Héðinn Valdimarsson:

Ef bankarnir lána í þessu tilfelli, þá yfirfærist áhættan á verkamenn og ríkissjóð. Ég tel afartvísýnt um réttlætingu á slíku láni, þegar ekki er unnt að fá tryggingu fyrir opinberum gjöldum og ekki fyrir þeim, sem hér eiga aðallega hlut að máli — verkafólkið.